Hermundur Sigmundsson

Fréttamynd

Ís­lenskt mennta­kerfi - stórar á­skoranir

Það hefur sjálfsagt aldrei átt betur við en nú í kjölfar slakra niðurstaðna íslenskra nemenda í PISA að segja áskoranir vera stórar í íslensku menntakerfi. Niðurstöðurnar þarf að taka alvarlega og nauðsynlegt að bregðast við með breyttum áherslum.

Skoðun
Fréttamynd

Þjálfunartíminn

Forsvarsmönnum rannsóknar og þróunarverkefnisins Kveikjum neistann er umhugað um velferð og velgengni allra barna. Verkefnið er skipulagt með það í huga að efla bæði árangur og líðan þeirra. Það varð ekki lengur við það búið að fjöldi barna útskrifist eftir tíu ár í grunnskóla með miður góða lestrarfærni.

Skoðun
Fréttamynd

Eflum ást­ríðu hjá börnum

Talið er að yfir eitt þúsund börn glími við svokallaða skólaforðun hér á landi, sem þýðir að þau treysta sér ekki til að mæta í skólann. Þau voru sláandi orð 21 árs Jóhönnu Birtu Bjartmarsdóttur á ráðstefnu Barna- og unglingageðdeildar í janúar á þessu ári en þar sagði hún að ekki væri rétt að tala um skólaforðun, heldur ætti að tala um skólakerfi sem bregðist börnum.

Skoðun
Fréttamynd

Finnum ást­ríðu okkar og þróum hana

Það er ekki alltaf allt eins og best verður á kosið og fyrir því eru margar og mismunandi ástæður. Kulnun verður sífellt algengari, einstaklingar komast í þrot og þurfa jafnvel í veikindaleyfi frá vinnu. Fólk í álagsstörfum er útsettara fyrir því að greinast með kulnun og má nefna að hér á landi hafa allt að 30% kennara fallið í þann flokk.

Skoðun
Fréttamynd

Ég get!

-Ég tók áskorun og ég náði henni. Ég er geggjað jákvæður! Þetta eru orð tíu ára drengs sem sigrast á hverri áskoruninni á fætur annarri í lestrarnámi sínu og upplifir um leið tilfinninguna, „Ég get!“ -

Skoðun
Fréttamynd

Bætum líðan, bætum árangur og eflum á­huga­hvöt barna

Kveikjum neistann er rannsóknar og þróunarverkefni, sem Grunnskóli Vestmannaeyja tekur þátt í hefur verið í gangi með nemendum í næstum tvö ár. Verkefnið hefur farið afar vel af stað og árangur nemenda lofar góðu. Það er einmitt árangur nemenda sem er skýrt leiðarljós þeirra sem að verkefninu koma og mjög ánægjulegt að sjá mælanlegan góðan árangur í færni jafnt sem líðan undanfarin tvö ár.

Skoðun