Hafliði Helgason

Fréttamynd

Stöðugleikinn mikilvægur

Þegar horft er um öxl yfir árið sem er að líða er ekki hægt að segja annað að en að efnahagsmál hafi þróast með betri hætti en nokkur þorði að vona.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þingmenn sýna þroska

Fyrir áhugafólk um stjórnmál hefur verið áhugavert að fylgjast með störfum þingsins frá því að það kom saman að loknum kosningum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sprotar spretta af menntun

Horft til lengri tíma mun það ráða úrslitum um hvernig okkur vegnar í efnahagslegu tilliti hvernig til tekst að byggja upp ný fyrirtæki byggð á þekkingu og hugviti. Í Markaðnum í dag er viðtal við þrjá stjórnendur Nýsköpunarsjóðs sem nú róa á ný mið með stofnun fjárfestingasjóðs sem hyggst fjárfesta í sprotafyrirtækjum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjárhagsleg skyndikynni

Farsæld í fjármálum er ekki háð tekjum í þeim mæli sem margir halda. Mýmörg dæmi má finna um það hvernig fólki með svipaðar tekjur verður mismikið úr ævistarfinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjárlög í miklum hagvexti

Fjárlagafrumvarpið er lagt fram við sérstakar aðstæður þar sem sú ríkisstjórn sem leggur það fram hefur ekki þingmeirihluta. Við þær kringumstæður mun reyna talsvert á þingið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hæfi og virðing

Við þingsetningu beindi forseti Íslands skynsamlegum orðum sínum til þingmanna og hvatti þá til að endurheimta traust og virðingu. Undanfarin misseri hafa stoðir ríkisvaldsins mátt búa við minnkandi traust og virðingu. Hið þrískipta ríkisvald hefur sjaldan notið jafn lítillar virðingar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tjáningarfrelsi og ábyrg orð

Fleyg er sú setning sem höfð er eftir Voltaire og reyndar ýmsum fleirum: "Ég fyrirlít skoðanir þínar, en er tilbúinn að láta líf mitt fyrir rétt þinn til að tjá þær.“ Setningin er í anda upplýsingastefnunnar og þeirra stjórnmálaumbóta sem henni fylgdu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Auður tónlistar á aðventu

Aðventan hefur smátt og smátt verið að breytast frá því að vera tími streitu, þrifnaðar og áhlaupa við endurbætur á eigin húsnæði yfir í tíma þess að njóta stundarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Pólarnir og límið í þeim

Engum þarf að koma á óvart að ekki tækist að koma saman þeim tveim ríkisstjórnum sem mögulegar voru án þess að flokkar settust niður með þeim sem þeir höfðu útilokað fyrirfram í samstarfi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Atvinnulífið og vextirnir 

Margir innan fjármálakerfisins og í atvinnulífinu urðu fyrir vonbrigðum þegar Seðlabankinn hélt stýrivöxtum sínum óbreyttum. Mat Seðlabankans sjálfs er að hann sé í hlutlausum gír.

Fastir pennar
Fréttamynd

Söluferli með fullu trausti

Lindarhvoll ehf. sem sér um sölu ríkiseigna sendi frá sér yfirlýsingu þar sem vísað var á bug ásökunum sem bjóðendur í Klakka höfðu sett fram. Gagnrýni bjóðendanna var margháttuð og laut að því að möguleiki hefði verið á gagnaleka í ferlinu

Fastir pennar
Fréttamynd

Óafsakanlegur næringarskortur

Ekki þarf að fara langt aftur í sögu okkar til þess að nútíminn yrði í samanburðinum tími ofgnóttar og sóunar. Framboð fjölbreyttrar fæðu hefur aldrei verið meira né forsendur til þess að hafa öll hugsanleg næringarefni í fæðunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Væntanleg skref í stjórnarmyndun

Staðan í myndun ríkisstjórnar er nokkuð flókin, en þó verður að teljast líklegast að fyrst verði látið reyna til fulls á myndun stjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Börnin sem lifa í skugganum

Sennilega er mikilvægasti mælikvarði á gæði samfélags sá að það bjóði hverjum og einum sem í því býr möguleika á fjölbreyttum þroskakostum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Jafnvægið og innviðirnir

Það er að bera í bakkafullan lækinn að ræða ákvörðun kjararáðs um laun stjórnmálamanna. Ákvörðunin og viðbrögðin við henni tala sínu máli og eru áminning um það hversu mikilvægt er að huga að jafnvægi þegar ákvarðanir eru teknar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hjónaband án skuldbindinga

Það er alltaf áhugavert að fylgjast með síðustu útspilum frambjóðenda fyrir kosningar. Staða þeirra ræður miklu um hvaða herfræði er beitt á síðustu metrunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Erfitt að standa við loforðin

Fyrir þó ekki væri nema tveimur árum hefði fáa órað fyrir því að vandamál íslenskrar hagstjórnar ættu eftir að snúast um að hemja gjaldeyristekjur þjóðarinnar og verja útflutningsgreinar fyrir styrkingu gjaldmiðilsins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ákvarðanir í stöðu án fordæma

Mánudaginn 6. október 2008 stóð þjóðin á öndinni þegar þáverandi forsætisráðherra staðfesti að fjármálakerfið væri að þrotum komið, tilkynnti setningu neyðarlaga og bað guð að blessa Ísland.

Fastir pennar
Fréttamynd

Loksins slaknar á höftunum

Alþingi samþykkti í gær frumvarp um gjaldeyrisviðskipti sem kynnt voru fyrir nokkru. Ný lög eru mikilvægt skref á þeirri vegferð að landið verði aftur þátttakandi í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Með lögunum eru heimildir Íslendinga til að dreifa áhættu sinni út fyrir íslenska hagkerfið rýmkaðar verulega.

Fastir pennar
Fréttamynd

Menntun í aska framtíðarinnar

Menntunarstig þjóða ræður miklu um hagsæld þeirra. Hvert sem litið er má sjá að þeim þjóðum vegnar best til lengri tíma þar sem lögð er rækt við þekkingu og menntun.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mikilvægi lífeyrismála

Við fall fjármálakerfisins misstu lífeyrissjóðir mikla eignir og margir þeirra þurftu í kjölfarið að skerða réttindi félagsmanna sinna. Nú hillir undir að einhverjir sjóðanna geti á næstu árum hækkað réttindi. Þetta er að sjálfsögðu háð því að ávöxtun á mörkuðum næstu árin verði sæmileg.

Fastir pennar
Fréttamynd

Myntráð í tíma tekið

Framtíðarskipan gjaldmiðlamála hlýtur að vera eitt meginverkefni þeirra sem hafa hug á að leiða þjóðina til hagsældar til framtíðar. Hliðarafurðir gjaldmiðlaumræðunnar eru raunar áberandi í umræðu stjórnmálanna svo sem vaxtakjör og verðtrygging. Minna fer fyrir kjarnanum sjálfum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ríkisábyrgð er ríkisframkvæmd

Göngin undir Vaðlaheiði eru vafalítið mikil samgöngubót fyrir þá sem búa í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Víkurskarð getur verið hvimleiður farartálmi að vetri og því má vel skilja ákafa heimamanna á svæðinu að bora göng undir heiðina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dómarar skrái hagsmuni sína

Samkvæmt svari innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins kom fram að ráðuneytið hafi hafnað tillögum nefndar um dómarastörf þess efnis að haldin yrði opinber skrá um eignarhluti dómara í félögum og atvinnufyrirtækjum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skrýtin örlög skýrslu

Örlög skýrslu sem kynnt var í upphafi sem skýrsla meirihluta fjárlaganefndar verða sífellt reyfarakenndari. Staða skýrslunnar er sú að hún er send áfram sem einkaskýrsla formanns nefndarinnar til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Samkeppni við sama borð

Það er fagnaðarefni að erlendar verslunarkeðjur sæki inn á íslenskan markað. Samkeppni í smásölu sem og á öðrum sviðum atvinnulífsins leiðir jafnan til betri niðurstöðu fyrir neytendur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þjóðarsátt um lífeyrismál

Samkomulag ríkisins og stéttarfélaga opinberra starfsmanna er mikilvægt skref í þá átt að auka gagnsæi og stöðugleika. Samanburður kjara á vinnumarkaði verður mun auðveldari en áður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Glatað tækifæri

Búvörusamningar sem binda skattborgara þessa lands til 140 milljarða greiðslna til næstu tíu ára voru samþykktir með atkvæðum nítján þingmanna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umgjörð banka

Á morgun verða liðin átta ár frá því að bandaríski fjárfestingarbankinn Lehman varð gjaldþrota. Sá atburður hratt af stað atburðarás sem hafði gríðarlegar afleiðingar um heim allan.

Fastir pennar