Tækni

Fréttamynd

Dreifir efni í Miðausturlöndum

Hex hugbúnaður hefur tekið að sér dreifingu á efni frá Disney-samstæðunni í farsíma í Miðausturlöndum. Samningurinn tekur þegar gildi og er unnið að uppsetningu búnaðarins í Internet Tower í Dubai þessa dagana. Önnur þjónusta Hex verður einnig tengd á sama tíma, þar á meðal myndabloggkerfi og efnisveitur.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt samskiptatæki fyrir farsíma

Og Vodafone og Research in Motion (RIM) hafa ákveðið að bjóða farsímanotendum Og Vodafone á Íslandi samskiptatækið BlackBerry frá Vodafone. Og Vodafone, sem er samstarfsaðili Vodafone Group Plc., hefur einkarétt á Blackberry Vodafone vörumerkinu hér á landi og mun bjóða viðskiptavinum sínum BlackBerry 7290 og BlackBerry 7100v.

Innlent
Fréttamynd

Slegið á fingur Kazaa

Eigendum Kazaa hefur verið gert að breyta forriti sínu á Eigendum Kazaa hefur verið gert að breyta forriti sínu til að koma í veg fyrir höfundarréttarbrot, en Kazaa er eitt vinsælasta skráaskiptaforrit heims. Fjallað var um dóminn á öllum helstu tæknivefjum heimsins í gær.

Erlent
Fréttamynd

Opna þráðlaust net í Kringlunni

Stærsta þráðlausa netsvæði fyrir almenning var opnað nú í hádeginu í Kringlunni. Og Vodafone og Kringlan standa straum af kostnaði við þjónustuna sem nær yfir um 20 þúsund fermetra svæði. Netsvæðið nær yfir öll veitinga- og kaffihús svo og alla ganga Kringlunnar.

Innlent
Fréttamynd

Kringlan er heitur reitur

Gestir og gangandi geta tengst Internetinu ókeypis í Kringlunni í Reykjavík eftir að Og Vodafone opnaði þar svokallaðan Heitan reit (Hot Spot), en það er þráðlaus háhraðainternettenging.

Innlent
Fréttamynd

Metvika á Vísi - Fjölsóttasti vefur landsins

Visir.is mælist enn fjölsóttasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Tæplega 172 þúsund notendur sóttu vefinn í síðustu viku [171.992] og lásu rúmlega níu milljón síður. Heimsóknir á Vísi hafa áður mælst fleiri en met var sett hvað varðar síðuflettingar og innlit.

Innlent
Fréttamynd

Margfalda burðargetu GSM

Og Vodafone ætlar að efla GSM fjarskiptakerfi sitt enn frekar á þessu ári með því að taka í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem getur margfaldað flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins. Prófanir á tækninni eru hafnar og er áætlað að hún verði tekin í notkun á síðasta fjórðungi þessa árs.

Innlent
Fréttamynd

Sky lokar á íslenska áskrifendur

Sky hefur ákveðið að loka fyrir íslenska áskrifendur. Ástæðan er að íslensk fyrirtæki auglýsa áskrift að stöðinni en fyrir því hafa þau ekki leyfi.

Innlent
Fréttamynd

Í tilraunaflug hjá ESA

Ágúst Örn Einarsson, nýútskrifaður vélaverkfræðingur í Danmörku, er fyrsti Íslendingurinn sem hefur farið í tilraunaflug hjá evrópsku geimferðastofnuninni. Tilgangur ferðarinnar var að prófa frumgerð af gervihnetti í þyngdarleysi.

Innlent
Fréttamynd

Kvaðir lagðar á símafyrirtæki

Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt.

Innlent
Fréttamynd

Öryggismyndavél með símkorti

Hafin er sala á nýrri eftirlitsmyndavél frá Nokia sem sögð er geta hentað fyrir heimili og eins til að hafa auga með sumarbústöðum.

Innlent
Fréttamynd

PFS vill skýringar á viðgerðartöf

Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan.

Innlent
Fréttamynd

Öll heimili tengd árið 2011

Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um að ljósleiðaravæðingu allra heimila borgarinnar ljúki árið 2011. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir við Akraneskaupstað og Seltjarnarnes.

Innlent
Fréttamynd

Aukningin hjá Cantat-3 ekki FARICE

Rannsókna- og háskólanet Íslands tengist ekki um FARICE sæstrenginn nýja og varð því ekki fyrir truflunum þegar samband rofnaði nýverið við Skotland. Verð gagnaflutninga um FARICE strenginn, sem stjórnvöld standa að, sætir gagnrýni.

Innlent
Fréttamynd

Þrefaldur munur á boði og áætlun

Orkuveita Reykjavíkur hefur hafnað öllum tilboðum í lagningu ljósleiðara á Akranesi og Seltjarnarnesi þar sem þau voru langt yfir kostnaðaráætlunum fyrirtækisins. Stjórnarmaður í Orkuveitunni gagnrýnir fyrirtækið fyrir ranga áætlanagerð.

Innlent
Fréttamynd

Útgáfufyrirtæki geta lögsótt

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að útgáfufyrirtæki geti höfðað mál gegn þeim fyrirtækjum sem hvetja viðskiptavini til að stela lögum og kvikmyndum af netinu.

Erlent
Fréttamynd

Allt falt á Netinu

Álfelgur undir bílinn, keramik-brennsluofn og iguana-eðla er meðal þess sem hægt er að kaupa í gegnum Netið þessa dagana. Margir af þessum auglýsingavefjum eru til þess gerðir að koma saman kaupendum og seljendum og því er lítið um að skattur eða önnur gjöld séu greidd af sölulaunum.

Innlent
Fréttamynd

100 ár frá því að fyrsta loftskeytið barst hingað til lands

Eitt hundrað ár eru liðin í dag frá því að fyrsta loftskeytið barst til Íslands. Þennan dag komst landið í daglegt fréttasamband við útlönd. Slík skeytasending markaði jafnframt mikil þáttaskil því þá urðu frjáls fjarskipti að veruleika hér á landi. Loftskeytið barst frá Poldhu í Cornwall á Englandi til loftskeytastöðvar Marconi's Wireless Telegraph Company á Rauðará í Reykjavík (nú Höfði).

Innlent
Fréttamynd

Netnotkun óvíða meiri

Rúm 80 prósent allra íslenskra heimila eru tengd internetinu og er það hlutfall það hæsta í gervallri Evrópu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Hagstofa Íslands hefur gert.

Innlent
Fréttamynd

86% Íslendinga nota Netið daglega

Hlutfall heimila með nettengingu er hvergi hærra í Evrópu en á Íslandi. 88 prósent Íslendinga nota tölvu og 86 prósent nota Netið nær daglega.

Innlent
Fréttamynd

GPRS-þjónusta hjá Og Vodafone

Og Vodafone hefur gert samning við Landssíma Íslands um GPRS-reikiþjónustu. GPRS er gagnflutningsþjónusta fyrir farsíma og gerir notendum kleift að miðla myndum, hreyfimyndum og gögnum. Einnig er hægt að vafra um á Netinu og sýsla með tölvupóst.

Innlent
Fréttamynd

SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu

Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun.

Innlent
Fréttamynd

Ísland dýrast í öllum flokkum

Íslenskir neytendur greiddu hæsta verð í Evrópu fyrir ADSL tengingar sínar á síðasta ári samkvæmt úttekt dönsku Tækni og fjarskiptastofnunarinnar. Greiddu Íslendingar rúmar sex þúsund krónur fyrir 512 kb/s áskrift á mánuði meðan Hollendingar, þar sem verðið var ódýrast, greiddu aðeins tæpar tvö þúsund krónur.

Innlent
Fréttamynd

Barnakláms leitað hjá Íslendingi

Tölvubúnaður, disklingar og myndbönd eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík vegna gruns um að þar sé að finna barnaklám. Eigandinn, 32 ára karlmaður, var handtekinn í gær og yfirheyrður. Europol stýrði aðgerðum gegn barnaklámhring í 13 löndum.

Innlent
Fréttamynd

Síminn hættur sekúndumælingum

Póst- og fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á breytingum sem Síminn hefur gert á tímamælingu símtala. Annan júní hætti fyrirtækið að innheimta gjöld samkvæmt sekúndumælingu í einstaklingsáskriftum farsíma.

Innlent
Fréttamynd

Lýðræði og frelsi bannorð í Kína

Kínverskir bloggarar fá skammir frá ritskoðurum ef þeir skrifa inn orð eins og „lýðræði“, „frelsi“ eða „mannréttindi“. Þeim er sagt að slíkt orðbragð sé bannað.

Erlent
Fréttamynd

Tölvuþrjótur laus gegn tryggingu

Gary McKinnon, 39 ára gamall Breti sem sakaður er um að hafa brotist inn í 53 tölvur Bandaríkjahers, varnarmálaráðuneytis og Varnarmálaskrifstofu Bandaríkjanna (Pentagon), auk Bandarísku geimrannsóknastofnunarinnar (NASA) á árunum 2001 og 2002, var í gær látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa verið dreginn fyrir dómara.

Erlent
Fréttamynd

Varað við símasölu netfyrirtækis

Tölvu- og netþjónustan Snerpa varar fólk við símasölu frá erlendu netfyrirtæki. Í tilkynningu frá Snerpu segir að fyrirtækið hafi síðustu daga fengið ábendingar um símasöluherferð netfyrirtækisins þar sem hringjandinn segist vera að aðstoða við skráningu á nafni viðkomandi í lénaskrá.

Innlent
Fréttamynd

Kínverjar ritskoða bloggsíður

Stjórnvöld í Kína hyggjast taka upp sérstakt eftirlit með bloggsíðum og umræðuvefjum. Opinberrar skráningar vefsíðna hefur lengi verið krafist í Kína. Breska ríkisútvarpið greindi frá því í gær að yfirvöld hefðu nú ákveðið að bloggsíður skyldu einnig lúta ríkisvaldi.

Erlent
Fréttamynd

PC World verðlaunar Opera vafrann

Greint var frá því í gær að Opera netvafrinn hafi unnið til sérstakra verðlauna tölvutímaritsins PC World, annað árið í röð. Blaðið hampar þar nýjustu útgáfu vafrans, sem kallast Opera 8 og segir hann bæði aðlaðandi og haganlega sniðinn þar sem notagildi fengi að njóta sín.

Innlent