Innlendar

Fréttamynd

Anna Soffía og Sighvatur Magnús Íslandsmeistarar

Sighvatur Magnús Helgason úr Mjölni og Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í brasilísku Jiu Jitsu. Rúmlega fimmtíu keppendur kepptu á Íslandsmótinu sem fram fór í Laugardalnum í dag.

Sport
Fréttamynd

Þórey Edda hefur störf hjá Frjálsíþróttasambandinu

Þórey Edda Elísdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Hún mun aðallega fást við verkefni sem miða að því að efla útbreiðslu frjálsra íþrótta. Þórey Edda mun einnig koma að undirbúningi Ólympíuhóps FRÍ fyrir leikana í London á næsta ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Frjálsíþróttasambandinu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Ragna og Ásdís fengu hálfa milljón - úthlutun úr Afrekskvennasjóði

Fjórar íþróttakonur og tvö sérsambönd fengu styrk í dag þegar tilkynnt var um áttundu úthlutun úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ. Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir og badmintonkonan Ragna Björg Ingólfsdóttir fengu báðar hálfa milljón og danskonurnar Hanna Rún Óladóttir og Sara Rós Jakobsdóttir fengu báðar 250 þúsund krónur.

Sport
Fréttamynd

Ragna í aðra umferð án þess að svitna

Ragna Ingólfsdóttir er komin áfram í aðra umferð á Bitburger Open mótinu í badminton þrátt fyrir að hafa ekki keppt í dag. Ragna átti að keppa á móti Maja Tvrdy frá Slóveníu en Tvrdy tilkynnti mínútu fyrir leikinn að hún gæfi hann sökum meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Ragna úr leik í fyrstu umferð í Hollandi

Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir er úr leik á opna hollenska meistaramótinu í badminton eftir tap í fyrstu umferð á móti tékknesku stúlkunni Kristina Gavnholt í dag.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Gefðu boltann!

Einspilari er orð sem er nánast eingöngu notað í yngri flokkum í knattspyrnu. Krakkar eða táningar sem kjósa ítrekað að fara sínar eigin leiðir frekar en að senda á samherja. Hvers vegna? Þeir vita að oftar en ekki virkar það.

Sport
Fréttamynd

Dagur í lífi sundmannsins

Íslenski sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson ákvað á dögunum að gera myndband þar sem farið er í gegnum týpískan dag í lífi sundmannsins.

Sport
Fréttamynd

Tvær undir Íslandsmetinu í sama sundinu

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH og Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi syntu báðar undir gamla Íslandsmetinu í 50m baksundi á Haustmóti Ægis sem fer fram í Laugardalslauginni um helgina. Hér er um að ræða Íslandsmetið í stutti laug það er 25 metra laug.

Sport
Fréttamynd

Ragna tapaði fyrir franskri stelpu í Tékklandi

Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir komst í átta manna úrslit á alþjóðlega tékkneska mótinu í gær en hún féll úr leik í morgun þegar hún tapaði fyrir Sashina Vignes Waran frá Frakklandi.

Sport
Fréttamynd

Framstúlkur réðu ekkert við Þorgerði Önnu - myndir

Þorgerður Anna Atladóttir skoraði tólf mörk í 30-27 sigri Vals á Fram í árlegum leik Íslands- og bikarmeistaranna í Meistarakeppni HSÍ í Vodafone-höllinni í gærkvöldi. Þetta er annað árið í röð sem Valur verður meistari meistaranna í kvennahandboltanum.

Handbolti
Fréttamynd

Pistillinn: Aldrei gefast upp!

Þolinmæði þrautir vinnur allar. Þetta hefur mamma brýnt fyrir mér oft og mörgum sinnum. Lengi vel fannst mér þetta nú bara vera eitthvert innantómt raus í kellingunni og kannski skildi ég aldrei almennilega hvaða boðskapur felst í raun og veru í máltækinu.

Sport
Fréttamynd

Landsliðið í andspyrnu tapaði fyrir Norðmönnum

Íslenska landsliðið í andspyrnu þurfti að lúta í gras fyrir því norska í gær en leikurinn fór fram á Tungubakkavelli í Mosfellsbæ. Andspyrna hefur sprottið upp hér á Íslandi að undanförnu en um er að ræða ástralskan fótbolta.

Sport
Fréttamynd

Ein mætti ekki í úrslitin í spjótkasti kvenna - svekkelsi fyrir Ásdísi

Það voru bara ellefu stúlkur sem kepptu til úrslita í spjótkasti kvenna á HM í frjálsum í Daegu í Suður-Kóreu í dag því Þjóðverjinn Linda Stahl mætti ekki til leiks. Ásdís Hjálmsdóttir endaði í þrettánda sæti í undankeppninni en tólf stúlkur komust í úrslitin. Ásdís var rúma 50 sentimetra frá því að komast í úrslitin.

Sport
Fréttamynd

Ásdís með besta kast ársins - einu sæti frá úrslitum

Ásdís Hjálmsdóttir komst ekki í úrslit í spjótkasti á HM í frjálsum í Suður-Kóreu í nótt. Ásdís kastaði lengst 59,15 metra, hennar besta kast á árinu, og varð í 13. sæti í undankeppninni, einu sæti frá því að komast í úrslit.

Sport
Fréttamynd

Hermann úr leik á HM í júdó

Hermann Unnarsson er úr leik á heimsmeistaramótinu í júdó sem fer nú fram í Bercy-höllinni í París. Hermann glímdi við úkraínskan kappa í morgun og tapaði.

Sport
Fréttamynd

Körfuboltastrákur á krossgötum

Arnar Pétursson bar sigur úr býtum í Reykjavíkurmaraþoninu þegar hann kom í mark á tæpum tveimur klukkustundum og 45 mínútum. Árangurinn er sérlega glæsilegur í ljósi þess að Arnar er ekki nema tvítugur og æfði sérstaklega fyrir hlaupið í einungis tvo mánuði.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmótið í brennibolta fer fram á laugardag

Íslandsmótið í brennibolta fer fram í þriðja skipti á laugardaginn. Leikið verður á Klambratúni en í fréttatilkynningu frá Brenniboltafélagi Reykjavíkur segir að búist sé við þátttakendum víðsvegar af landinu.

Sport
Fréttamynd

Frábær stemning á Reykjavíkurmaraþoninu

Reykjavíkurmaraþonið fór fram á laugardaginn við frábærar aðstæður. Veður var gott og var metþátttaka í öllum sex vegalengdunum. Rúmlega tólf þúsund tóku þátt.

Sport