Um land allt

Fréttamynd

Síðasta myndin af þúfunum þar sem eldsprungan opnaðist

Ljósmyndir sem taldar eru þær síðustu sem teknar voru fyrir gos á svæðinu austast á Heimaey þar gossprungan opnaðist aðfararnótt 23. janúar 1973 verða sýndar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, sunnudag, að loknum fréttum klukkan 18.55. Guðmundur E. Jóelsson átti myndavélina en í viðtali í þættinum greinir hann frá því að myndirnar voru teknar í gönguferð 5-6 frændsystkina af Kirkjubæjartorfunni sunnudaginn 21. janúar, aðeins rúmum sólarhring áður en jörðin rifnaði þar upp.

Innlent
Fréttamynd

Væri gaman að sjá barnavagninn eftir 40 ár

"Ég hefði nú gaman af því að sjá barnavagninn. Hann á að vera þarna," sagði Guðrún Ingibergsdóttir í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um eldgosið á Heimaey.

Innlent
Fréttamynd

Eyjamenn lýsa því hvernig var að vakna upp við eldgos

Þegar eldsprungan opnaðist á Heimaey þann 23. janúar fyrir fjörutíu árum í austurjaðri byggðarinnar þá var fjarlægðin frá næstu íbúðarhúsum litlu meiri en vegalengdin yfir Arnarhól í Reykjavík. 5200 manns í Vestmannaeyjum upplifðu þar einhverja ógnþrungnustu nótt Íslandssögunnar. Þennan atburð ætlar Stöð 2 næstu sunnudagskvöld að rifja upp í þættinum "Um land allt" með hjálp Eyjamanna sem stóðu í eldlínunni en fyrsti þátturinn var sýndur í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Um land allt

Kristján Már Unnarsson og Baldur Hrafnkell Jónsson kvikmyndatökumaður heimsóttu Norðurland, nánar tiltekið Skagafjörðinn.

Innlent
Fréttamynd

Skagfirðingar gera fiskroð að verðmætri hátískuvöru

Slorið úr íslenskum fiskvinnslum er orðið að verðmætri útflutningsvöru til frægustu hátískufyrirækja heimsins. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, en þar var fyrirtækið Sjávarleður á Sauðárkróki heimsótt. Gestastofa sútarans er andlit fyrirtækisins og það hefur í raun farið furðu hljótt miðað við þann árangur sem það hefur náð á alþjóðavettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Drangsnesingar reka bæjarútgerð og fiskvinnslu

Íbúar Drangsness við Steingrímsfjörð ásamt sveitarfélaginu Kaldrananeshreppi standa saman að útgerð kvótamesta bátsins og stærsta fyrirtækisins, Fiskvinnslunnar Drangs. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt," á Stöð 2 í gærkvöldi. "Ég held að það megi alveg örugglega segja að það sé hjartað í byggðinni á Drangsnesi því að hérna starfar stór hluti og þetta er eign samfélagsins algerlega," sagði Óskar Torfason, framkvæmdastjóri Drangs.

Innlent
Fréttamynd

Ívar byggir gistihús í Stöðvarfirði

Ívar Ingimarsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, hefur ákveðið að snúa sér að ferðaþjónustu á Austfjörðum og er að hefja smíði gistihúss í botni Stöðvarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Endurlífga gamla frystihúsið á Stöðvarfirði

Gamla frystihúsið á Stöðvarfirði, sem til stóð að rífa, er að fá nýtt hlutverk. Ungt fólk er flutt austur til að taka þátt í ævintýrinu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag. Stöðvarfjörður er lítið þorp á sunnanverðum Austfjörðum þar sem atvinnustarfsemin hrundi til grunna. Tveir togarar fóru, fiskvinnsla lagðist af, og íbúum fækkaði um helming.

Innlent
Fréttamynd

Erfiður aðskilnaður móður og dóttur á Ströndum

Mæðgur úr Árneshreppi á Ströndum, þær Edda Hafsteinsdóttir, kaupfélagsstjóri í Norðurfirði, og fimmtán ára dóttir hennar, Júlíana Lind Guðlaugsdóttir, lýstu erfiðum aðskilnaði í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, en dóttirin þurfti í haust að yfirgefa sveitina sína og flytja til frændfólks í Grafarvogshverfi í Reykjavík þar sem tíundi bekkur grunnskóla er ekki kenndur í Árneshreppi.

Innlent
Fréttamynd

Lokuð inni í þrjá mánuði - ekki réttlátt

Íbúar Árneshrepps mega búast við að vera innilokaðir í þrjá mánuði í vetur þar sem stjórnvöld ætla ekki að kosta snjómokstur. Ung móðir sem nýlega flutti í hreppinn segir bættar vegasamgöngur númer eitt, tvö og þrjú.

Innlent
Fréttamynd

Rætt við fólk í Árneshreppi á Stöð 2

Síðari hluti þáttarins "Um land allt“ sem tekinn var upp í Árneshreppi á Ströndum verður sýndur á Stöð 2 kl. 18:55 í kvöld. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2 og Baldur Hrafnkell Jónsson, tökumaður, voru á ferð í hrppnum 12. október síðastliðinn og tóku þá viðtöl við fólk í hreppnum. Þættirnir njóta mikilla vinsælda og eru með eitt mesta áhorfið á Stöð 2.

Atvinnu- og raðauglýsingar
Fréttamynd

Finnst dásamlegt að vera í Árneshreppi

Kynslóðaskipti á tveimur bæjum í Trékyllisvík og fjölgun barna í skólanum á Finnbogastöðum hafa kveikt vonarneista um framtíð byggðar í Árneshreppi á Ströndum. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Kristján Már heimsækir Árneshrepp

Stöð 2 hefur sýnt fróðlega þætti á sunnudagskvöldum þar sem fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson ferðast um landið og ræðir við landann. Í þættinum sem heitir "Um land allt“ hafa komið fram ýmsir skemmtilegir einstaklingar sem sagt hafa sögu sína. Meðal annars hefur Kristján Már heimsótt heimilisfólkið að Laugarholti í Ísafjarðardjúpi og Indriða bónda að Skjaldfönn á Snæfjallaströnd. Í næsta þætti heldur Kristján áfram ferð sinni um Vestfirði og ræðir við bændur og búalið í Árneshreppi.

Atvinnu- og raðauglýsingar
Fréttamynd

Loðdýrabændur brosa út að eyrum

Íslenskir loðdýrabændur upplifa nú fádæma góðæri og hefur hagnaður af búrekstrinum sjaldan eða aldrei verið jafnmikill. Á síðasta uppboði í Kaupmannahöfn á íslenskum minkaskinnum fékkst yfir tíu þúsund króna meðalverð. Framleiðslukostnaður á hverju skinni er hins vegar um sex þúsund krónur. Hreinn hagnaður nemur því um 40 prósentum af sölutekjum.

Innlent
Fréttamynd

Fluttu til Íslands til að hefja minkarækt í Skagafirði

Ungt danskt-íslenskt par, sem er að hasla sér völl í minkarækt á bænum Héraðsdal 2 í Skagafirði, var heimsótt í þættinum "Um land allt" , sem var á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Hún er íslensk, Halla Ólafsdóttir frá Djúpavogi, en hann danskur, Jesper Bækgaard. Þau eiga fimm mánaða gamlan son, Jens Ólaf, en þau kynntust fyrir fimm árum þegar bæði voru við háskólanám í Árósum, þó engu sem tengist loðdýrum, en kaupin á minkabúinu var þeirra leið til að flytjast til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Lifum ekki á fjallagrösum - þurfum alvörustörf

"Þegar við sjáum tækifærin hérna þá er svo einkennileg árátta hjá fólki að vilja að fara að vernda allt fyrir okkur," sagði Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps, í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi. Kristján Már Unnarsson heimsótti Þórunni og eiginmann hennar, Friðbjörn Hauk Guðmundsson, en þau búa á bænum Hauksstöðum í Vesturárdal í Vopnafirði ásamt þremur börnum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Hrikalega stór lömb í Djúpinu

Tveir lambhrútar, sem ær frá Skjaldfönn átti, reyndust hvor um sig vera 72 kíló að þyngd þegar þeir fóru í sláturhús í haust. Um 40% af heildarþyngd skepnunnar flokkast jafnan sem kjöt. "Þetta hangir í að vera nærri 60 kíló af kjöti eftir tvílembu, sem mun vera að ég held örugglega Íslandsmet. Svona afurðir eftir tvílembu munu óþekktar," segir Indriði Aðalsteinsson bóndi, en um þetta var fjallað í þættinum Um land allt. Skjaldfönn í Ísafjarðardjúpi hefur undanfarin 30 ár verið eitt eitt afurðamesta bú landsins, það er kjöt eftir hverja kind, ef ekki í efsta sæti á þá með fimm efstu á hverju ári.

Innlent
Fréttamynd

Amman ræktar epla- og appelsínutré við Drangajökul

Amman í Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi, Ása Ketilsdóttir, vakti athygli í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi þegar hún sýndi skrúðgarðinn sem hún er búinn að rækta upp á bæ sínum, Laugalandi, inn undir Drangajökli. Þar er hún með á þriðja hundrað tegunda, þeirra á meðal margar sem teljast suðrænar, eins og bóndarós, og það á svæði sem þekkt er fyrir kuldaleg örnefni; Kaldalón, Snæfjallaströnd og Skjaldfönn. "Það er líka til Unaðsdalur," bætti Ása við og minnti á nafn næsta dals norðan Kaldalóns.

Innlent
Fréttamynd

Stelpan sem stal senunni á Möðrudal

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir, 6 ára geitahirðir á Möðrudal á Fjöllum, stal senunni í þættinum "Um land allt" sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi.

Innlent