Innlent

Svona voru aðstæður við björgun rjúpnaskyttnanna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Björgunarsveitir máttu glíma við vatnsmiklar ár og mikið rok þegar leitað var að tveimur rjúknaskyttum um helgina.
Björgunarsveitir máttu glíma við vatnsmiklar ár og mikið rok þegar leitað var að tveimur rjúknaskyttum um helgina. Mynd/Skjáskot
Björgunarsveitarmenn sem tóku þátt í leit að tveimur rjúpnaskyttum á Snæfellsnesi um helgina máttu glíma við afar erfiðar aðstæður í leitinni líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Leit hófst á laugardag en mennirnir fundust um klukkan tvö í gær. Mikil þoka, rok og töluvert vatnsveður gerðu leitarmönnum erfitt um vik en þegar allt var talið komu um 200 manns að leitinni þegar mest lét.

Mennirnir sem leitað var að höfðu leitað sér skjóls undan veðrinu ofarlega í hlíðum Gráborgar, ofan Hestdala sem ganga inn af Kolgrafarfirði. Voru þeir orðnir bæði kaldir og blautir þegar björgunarsveitarmenn komu að þeim.

Skytturnar höfðu leitað sér skjóls í hlíðum Gráborgar, ofan Hestdala sem ganga inn af Kolgrafarfirði.Vísir/Loftmyndir.is
Veðuraðstæður voru þannig að litlar ár urðu gríðarlega vatnsmiklar líkt og sjá má meðfylgjandi myndbandi en nokkrum klukkutímum áður en að myndbandið hér að ofan var tekið mátti hæglega vaða yfir ána.

Það var þó annað upp á teningnum þegar þessi hluti leitarmanna þurfti að komast yfir ána en líkt og sjá má þurfti fjölda manns til þess að koma öllum leitarmönnum og búnaði yfir ána. Þór Þorsteinnson birtir myndbandið á Facebook-síðu sinni.

„Lokametranir á annars erfiðum degi - Ég er ákaflega stoltur af að vera hluti af þessari heild sem hugsar í lausnum en ekki vandamálum með samvinnu en ekki sérhagsmuni að leiðarljósi,“ skrifar Þór við myndbandið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×