Sport

Svona greindi Sharapova frá lyfjaprófinu | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
"Ég veit að mörg ykkar héldu að ég væri að tilkynna að ég væri hætt en það myndi ég aldrei gera í miðbæ Los Angeles á hóteli með svona ljótu teppi.“
"Ég veit að mörg ykkar héldu að ég væri að tilkynna að ég væri hætt en það myndi ég aldrei gera í miðbæ Los Angeles á hóteli með svona ljótu teppi.“ Vísir/Getty
Maria Sharapova greindi frá því í gær að hún hefði fallið á lyfjaprófi á opna ástralska meistaramótinu í janúar.

Fréttirnar komu mörgum í opna skjöldu en Sharapova er ein þekktasta íþróttakona heims. Hún hefur unnið fimm risamót og er tekjuhæsta íþróttakona síðustu ára.

Sjá einnig: Sharapova féll á lyfjaprófi

Lyfið sem felldi hana var sett á bannlista um áramótin. Hún segist hafa tekið þetta lyf löglega í tíu ár. „Ég féll á lyfjaprófi og axla fulla ábyrgð á því,“ sagði Sharapova á blaðamannafundi sínum eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

„Síðustu tíu ár hef ég fengið lyfið mildronate frá fjölskyldulækninum. Er mér var tilkynnt að ég hefði fallið á lyfjaprófi þá komst ég að því að þetta lyf er einnig kallað meldonium. Ég vissi það ekki.“

Sjá einnig: Sharapova: Ég axla fulla ábyrgð

„Það er mikilvægt að allir skilji að þetta lyf hefur ekki verið á bannlista og ég hef verið að taka það löglega. Ég vissi ekki af því að það hefði verið sett á bannlista. Ég fékk tölvupóst um breytingar í lyfjalögunum þann 22. desember en ég opnaði ekki hlekkinn sem fylgdi. Það voru stór mistök hjá mér. Ég hef brugðist aðdáendum mínum og íþróttinni sem ég elska svo mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×