Innlent

Sveik tæpar 13 milljónir út úr Arion banka með fölsuðum tékka

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Arion banki situr uppi með tjónið. Nordic Visitor hefur endurgreitt bankanum andvirði ferðarinnar.
Arion banki situr uppi með tjónið. Nordic Visitor hefur endurgreitt bankanum andvirði ferðarinnar. Vísir / Pjetur
Ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var notað til að svindla 12,8 milljónir króna út úr Arion banka árið 2011. Bankinn greiddi andvirði tékka inn á reikning Nordic Visitor sem átti að vera greiðsla fyrir ferð á vegum fyrirtækisins. Tékkinn hljóðaði upp á talsvert hærri fjárhæð en umrædd ferð átti að kosta og endurgreiddi fyrirtækið því viðskiptavini sínum áðurnefndar 12,8 milljónir króna. Tékkinn reyndist hinsvegar falsaður en þegar það uppgötvaðist voru peningarnir horfnir.

Þetta kemur fram í málsgögnum í máli sem Arion banki höfðaði gegn Nordic Visitor en bankinn vildi meina að hið síðarnefnda fyrirtæki ætti að bera ábyrgð á greiðslunni.

Greiddi 12,8 milljónum of mikið

Málið hófst þegar erlendur aðili að nafni Elijah Okesola pantaði sér ferð á vegum Nordic Visitor að andvirði rúmlega 7.000 evra. Hann samdi um að greiða með tékka sem hann sendi til Arion banka. Þar óskaði hann eftir því að andvirði tékkans yrði greitt inn á reikning fyrirtækisins. 77.548 evra mismunur var hinsvegar á verði ferðarinnar og upphæð tékkans.

Eftir að bankinn staðfesti við forsvarsmenn Nordic Visitor að upphæðin yrði ekki bakfærð af reikningi félagsins endurgreiddi það Okesola það sem hann hafi ofgreitt, jafnvirði 12,8 milljóna króna, inn á reikning hans hjá Dubai Islamic Bank, sem er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Peningarnir hurfu í Dubai

Þegar Arion banki sendi svo tékkann í innheimtu erlendis, þaðan sem hann taldi að tékkinn væri útgefinn, kom hinsvegar í ljós að grunur léki á að hann væri falsaður. Ekki var hægt að endurheimta féð af reikningi Okesola hjá Dubai Islamic Bank þar sem að búið var að tæma reikninginn.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að Nordic Visitor bæri ábyrgð á gjörningnum og sagði að bankinn hafi ekki fylgt réttu vinnulagi við afgreiðslu tékkans; ekki hafi átt að vera búið að greiða út tékkann fyrr en staðfest væri að innistæða væri fyrir honum.

Nordic Visitor hefur hinsvegar þegar endurgreitt andvirði ferðarinnar til Arion banka. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×