Sport

Sunna og Greenway mættust á vigtuninni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sunna og Greenway á vigtuninni. Greenway mætti í sundbol eins og sjá má.
Sunna og Greenway á vigtuninni. Greenway mætti í sundbol eins og sjá má. mynd/mjölnir.is/kjartan páll
Það var flott stemning á vigtuninni fyrir Invicta FC 19 í Kansas City í nótt.

Þar mættust Sunna „Tsunami“ Davíðsdóttir og andstæðingur hennar Ashley „ Doll Face“ Greenway í fyrsta skipti fyrir bardaga þeirra í nótt.

Þær voru báðar 52,3 kíló á vigtinni og eru því löglegar fyrir bardaga í strávigtinni.

Bardagakvöld Invicta hefst á miðnætti og bardagi þeirra er sá fyrsti á dagskránni í kvöld.

MMA

Tengdar fréttir

Hungruð að komast inn í búrið

Sunna Rannveig Davíðsdóttir mun brjóta blað í sögunni í nótt er hún berst í Kansas City. Hún verður þá fyrsta íslenska atvinnubardagakonan í MMA. Hún getur ekki beðið eftir bardaganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×