Fótbolti

Suarez braut ísinn með svakalegu marki | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/AP
Luis Suarez skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir Barcelona en með því kom hann liðinu á bragðið í leik gegn kýpverska liðinu APOEL í Meistaradeild Evrópu.

Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi var markið glæsilegt en Suarez náði að snúa af sér varnarmann og setja boltann snyrtilega í markhornið.

Suarez kom til Barcelona frá Liverpool í sumar en hóf leiktíðina í banni fyrir að bíta Giorgio Chiellini, leikmann Ítalíu, á HM í Brasilíu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×