Skoðun

Stytt kjör­tíma­bil for­senda breytinga

Hjörtur Hjartarson skrifar

„Við skuldbindum okkur hér með til þess að gera stjórnarskrárumbætur, sem grundvallast á drögum stjórnlagaráðs, að forgangsmáli á nýju þingi.“



Allir stjórnarandstöðuflokkarnir sem Píratar hóuðu saman nú fyrir kosningar hafa gefið kjósendum þetta fyrirheit. Þá hljóta þeir að reikna með stuttu kjörtímabili eins og Píratar hafa lagt til. Ástæðan er tvíþætt: Í fyrsta lagi kveður stjórnarskráin frá 1944 á um að rjúfa skuli þing um leið og breytingar á stjórnarskrá eru samþykktar. Í öðru lagi er óraunhæft, og mikið óráð, að ætla að geyma fram til loka kjörtímabils að samþykkja nýja stjórnarskrá. Það væri að spila upp í hendurnar andstæðingum breytinga og gefa þeim óverðskuldað færi á að grafa áfram undan nýju stjórnarskránni og einnig stjórnarsamstarfinu. Allt kjörtímabilið myndi einkennast af ósvífinni stjórnarandstöðu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vegna þessa eina máls. Þeir myndu ólmast gegn öllum málum eins og þeim væri borgað fyrir það. Við vitum það af biturri reynslu.



Jafnframt því að setja nýja stjórnarskrá á oddinn þarf að hefja af krafti umbótastarf á öðrum sviðum, svo sem í heilbrigðiskerfinu og almannatryggingakerfinu. Þeim breytingum yrði síðan haldið áfram eftir að ríkisstjórn umbótaflokkanna hefði endurnýjað umboð sitt og ný stjórnarskrá tekið gildi.



Flokkar sem ná þessu stórmáli í gegn þurfa ekki að óttast kjósendur. Auk þess er ný stjórnarskrá forsenda og upphafsstef lífsnauðsynlegra umbóta. Ef andstæðingum nýju stjórnarskrárinnar tekst enn að koma í veg fyrir að vilji kjósenda sé virtur, þá er það ekki aðeins þungt áfall fyrir lýðræði í landinu heldur yrði öllum umbótum í þágu almennings kippt til baka á augabragði um leið og tækifæri gæfist. Það vitum við líka af biturri reynslu.



Stjórnarskrá í samræmi við vilja kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012 lá fyrir fullbúin af hálfu Alþingis undir lok síðasta kjörtímabils. Alþingi þarf aðeins að ganga frá nýrri og rækilegri greinargerð með frumvarpinu. Síðan að samþykkja frumvarpið og rjúfa þing og boða til kosninga. Um leið mætti gera ráðstafanir til að hefja endurskoðunarferli strax. En frekara fikt stjórnmálaflokkanna í stjórnarskrá fólksins, eins og gerðist á yfirstandandi kjörtímabili, er fullreynt, og það fyrir löngu. Varla þarf að óttast að lagt verði út í þá ófæru enn einu sinni.



Forsenda varanlegra breytinga og umbóta er sú að umbótaflokkarnir hangi ekki skilyrðislaust á nýfengnum völdum eftir komandi kosningar heldur sýni hugrekki og stjórnvisku. Það munu kjósendur kunna að meta.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×