Fótbolti

Stutt gaman hjá De Boer á Ítalíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
De Boer á bekknum með Inter.
De Boer á bekknum með Inter. vísir/getty
Ítalska félagið Inter rak í morgun þjálfara félagsins, Frank de Boer.

Hollendingurinn var aðeins búinn að vera þjálfari Inter í 84 daga en náði aldrei neinu flugi með liðið.

Inter er í tólfta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir ellefu leiki. Liðið er aðeins búið að næla í fjórtán stig í ellefu leikjum.

Nú bíða menn eftir því hvað hinir kínversku eigendur félagsins gera næst en De Boer var ráðinn í stað Roberto Mancini á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×