Bílar

Stungið í samband í stærstu innstungu landsins

Finnur Thorlacius skrifar
Stærsta rafmagnsinnstunga landsins er fyrir Kia Soul EV rafmagnsbílinn.
Stærsta rafmagnsinnstunga landsins er fyrir Kia Soul EV rafmagnsbílinn.
Vegfarendur hafa eflaust velt vöngum yfir risastórri rafmagnskló sem stungið hefur verið í innstungu af sömu stærð á vegg líkamsræktarstöðvarinnar World Class í Laugum.

Innstungan er sú stærsta á landinu, 180x180 cm, en það voru starfsmenn Bílaumboðsins Öskju sem komu henni fyrir í tilefni þess að á laugardaginn verður glænýr rafmagnsbíll af gerðinni Kia Soul EV frumsýndur hér á landi.

Klóin og innstungan voru hönnuð af auglýsingastofunni Brandenburg í samstarfi við leikmyndagerðina Irma Studio. Tók það tvo listamenn fimm heila daga að fullklára verkið, en það er unnið úr frauðplasti og vegur um 80 kg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×