Enski boltinn

Stuðningsmenn Man. Utd háværastir allra á útivelli

Hávær stuðningsmaður Man. Utd hér með miða á útileik.
Hávær stuðningsmaður Man. Utd hér með miða á útileik. vísir/getty
Þó svo það hafi gengið skelfilega hjá Man. Utd á útivelli framan af vetri þá verður ekki sakast við stuðningsmenn liðsins.

Man. Utd tapaði fyrstu fimm útileikjum sínum í vetur og það var ekki fyrr en í sjötta leiknum sem sigur kom á úvtivelli. Hann var reyndar ekki mjög glæsilegur eins og menn muna frá leiknum gegn Arsenal.

Stuðningsmenn liðsins sungu sig hása á öllum þessum leikjum. Það hefur verið mælt að þeir séu háværastir allra liða á útivelli.

Stuðningsmenn Newcastle koma næstir á þessum lista og Liverpool fylgir fast á eftir.

Háværustu stuðningsmennirnir á útivelli:

1. Man United

2. Newcastle

3. Liverpool

4. Crystal Palace

5. Chelsea

6. Man City

7. Arsenal

8. West Ham

9. Southampton

10. Stoke

11. Cardiff

12. Norwich

13. Swansea

14. Sunderland

15. Everton

16. Aston Villa

17. Leicester

18. Spurs

19. Fulham

20. Hull

21. QPR

22. Burnley

23. West Brom




Fleiri fréttir

Sjá meira


×