Enski boltinn

Stuðningsmenn Liverpool varaðir við fölsuðum miðum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liverpool vann þennan bikar síðast 2001.
Liverpool vann þennan bikar síðast 2001. Vísir/Getty
Liverpool spilar til úrslita í Evrópudeildinni í Basel í kvöld og í boði er ekki bara Evróputitill heldur einnig sæti í Meistaradeildinni. Stuðningsmenn Liverpool fjölmenna því til Basel en það geta færri fengið miða en vilja.

BBC segir frá því að falsaðir miðar séu komnir í umferð og að það sé ekki auðvelt að átta sig á því að miðarnir séu falsaðir.

Einn stuðningsmaður Liverpool borgaði sem dæmi 700 pund fyrir tvo miða á úrslitaleikinn eða 125 þúsund í íslenskum krónum en svo kom í ljós að miðarnir voru falsaðir.

Liverpool fékk í upphafi tíu þúsund miða á úrslitaleikinn en að auki fékk Liverpool tvö þúsund af miðunum sem Sevilla tókst ekki að selja á Spáni.

Það eru samt fullt af stuðningsmönnum Liverpool sem eru ekki komnir með miða og í örvæntingu sinni hafa þeir leitað allra leiða til að redda sér miðum. BBC segir sögu eins þeirra.

„Við hittumst fyrir utan Anfield og hann kom með tvo miða í hvítu umslagi. Mér fannst það svolítið skrítið því ég bjóst við að fá þá í opinberu umslagi. Hann lét mig fá miðana og þeir litu fullkomlega löglega út," sagði ónefndur og óheppinn stuðningsmaður Liverpool við BBC.

„Þegar miðarnir eru bornir saman við alvöru miða þá er ekki mikill munur á þessum miðum," sagði þessi umræddri stuðningsmaður.

Lögreglan í Sviss hefur nú varað stuðningsmenn Liverpool að reyna að kaupa miða í gegnum enda eru alltaf einhverjir óprúttnir aðilar að reyna að græða á svona aðstæðum.

Ástæða þess að málið er alvarlegra en oft áður en að fölsuðu miðarnir eru mjög vel gerðir og það vantar aðeins heilmynd af UEFA-merkinu á fölsuðu miðana. Það eykur líka á áhyggjur manna að St. Jakob-Park leikvangurinn er frekar lítill fyrir úrslitaleik í Evrópukeppni og því í raun alltof fáir löglegir miðar í boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×