Fótbolti

Strípalingurinn gisti fangageymslur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Rússneska Youtube-stjarnan Vitaly Zdorovetskiy vakti heimsathygli í gær þegar hann náði að trufla leik Argentínu og Þýskalands í úrslitum Heimsmeistaramótsins.

Zdorovetskiy sem er með tæplega 220 þúsund fylgjendur á Twitter opinberaði deginum áður áform sín um að hoppa inn á völlinn án leyfis en engum tókst að stöðva hann.

Zdorovetskiy reyndi að kyssa Benedikt Höwedes, leikmann Schalke og þýska landsliðsins áður en öryggisverðirnir náðu til hans og báru hann í sameiningu af vellinum og er virðist af Twitter-aðgangi Zdorovetskiy í brasilískt fangelsi.

Óhætt er að segja að uppátæki Zdorovetskiy hafi vakið mikla athygli og skemmti hann meðal annars LeBron James sem var áhorfandi á leiknum en myndband LeBron af uppátæki Zdorovetskiy má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×