Fótbolti

Strákarnir fá 600 dósir af skyri í dag

Henry Birgir Gunnarsson í Kabardinka skrifar
Það var létt yfir strákunum á æfingu í gær og verður enn léttara yfir þeim í dag er það kemur ný sending af skyri á hótelið þeirra.
Það var létt yfir strákunum á æfingu í gær og verður enn léttara yfir þeim í dag er það kemur ný sending af skyri á hótelið þeirra. vísir/vilhelm
Þó svo það sé viðskiptabann þá fá strákarnir okkar í Rússlandi aðeins af íslenskum mat.

Er þeir komu til landsins biðu þeirra 600 dósir af Ísey skyri sem er nýbyrjað að framleiða í Rússlandi. Þær eru allar búnar og því er von á 600 dósum í viðbót í dag. Ekki veitir af.

Kokkum landsliðsins hefur einnig tekist að útvega smá íslenskan fisk og þess utan náðist að redda íslensku lambi í eina máltíð. Þá var að sjálfsögðu haft bernaise með.

Strákarnir í landsliðinu hafa verið himinilifandi með frammistöðu kokkanna, Hinriks Inga og Kirill, enda hafa þeir slengt fram hverri veislunni á fætur annarri.

Að neðan má sjá auglýsingu fyrir Ísey skyrið þar sem Tólfan og íslenskur kór koma við sögu.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.


Tengdar fréttir

Messi bað um treyjuna hans Birkis

Frægt augnablik frá EM í Frakklandi fyrir tveimur árum er þegar Cristiano Ronaldo vildi ekki skiptast á treyjum við Aron Einar Gunnarsson eftir jafntefli Íslands og Portúgal. Aron Einar bað ekki um treyju Lionel Messi eftir leik Íslands og Argentínu í gær heldur bað Messi um treyju eins strákanna okkar.

Sumarmessan: Kokkurinn þakkaði Messi fyrir leikinn

Íslenska landsliðið er með kokk á vegum KSÍ sem sér um að elda ofan í strákana á HM í Rússlandi. Kokkurinn, Hinrik Ingi Guðbjargarson, beið hins vegar ekkert í eldhúsinu á meðan Ísland spilaði við Argentínu heldur var mættur inn á völlinn og tók í hendina á Messi eftir leik.

Strákarnir fengu pönnukökur í tilefni dagsins

Í dag er þjóðhátíðardagur Íslands, eins og allir þeir sem geta lesið og skilið þennan texta vita líklega. Þrátt fyrir að íslenska karlalandsliðið í fótbolta hafi um ýmislegt að hugsa þessa dagana þá höfðu þeir tíma til þess að fagna deginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×