Innlent

Strætisvagnstjóri verður kallaður á teppið eftir að stórslysi var forðað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stórslys hefði getað orðið á Akranesfjallvegi í gær.
Stórslys hefði getað orðið á Akranesfjallvegi í gær.
Segja má að munað hafi mjóu að stórslys hafi orðið á Akrafjallsvegi í gær þegar strætóbílstjóri tók fram úr fólksbíl á leiðinni upp á Skaga. Málið er til skoðunar hjá Hópbílum að sögn forstjóra fyrirtækisins.

Ökumaður bílsins sem ók á eftir strætisvagninum birti myndband af atburðinum á Fésbókarsíðu sinni í gær. Hann tekur myndband af eigin hraðamæli sem sýnir að hraði hans eigin bíls er rúmlega 100 km/klst. Svo sést strætisvagninn á leið fram úr bílnum þar fyrir framan.

Eins og sjá má á myndbandinu skellur hurð nærri hælum þegar vagninn fer fram úr. Bíl er ekið úr gagnstæðri átt en ökumaður þess bíls þarf að aka út í kant líkt og ökumaður bílsins sem tekið er fram úr. Farþegar voru í strætisvagninum og því ljóst að stórslys hefði getað orðið.

Hvað finnst ykkur um aksturslag strætóbílstjórans?

Posted by Flosi Pálsson on Thursday, June 25, 2015


„Þetta er í skoðun innanhúss hjá okkur,“ segir Gísli Jens Friðjónsson, forstjóri Hópbíla sem sér um aksturinn. Hann segir að rætt verði við vagnstjórann í dag.

„Þetta verður tekið föstum tökum hjá okkur. Svona á ekki að gerast,“ segir Gísli. Þess utan eigi búnaður í vagninum að koma í veg fyrir að hægt sé að aka hópferðabílum svo hratt. Ljóst er að hraði vagnsins hefur verið nokkuð yfir hámarkshraða til að geta tekið fram úr bílum þar sem mælar sýna rúmlega 100 km/klst hraða. Hámarkshraði á vegakaflanum er 90 km/klst.

„Þetta á ekki að vera hægt,“ segir Gísli Jens sem vill ekki tjá sig frekar um málið fyrr en rætt hefur verið við bílstjórann.

Ekki náðist í Flosa Pálsson, sem tók myndbandið, við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×