Bíó og sjónvarp

Stórmyndin sem floppaði í bíó

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kvikmyndin The Shawshank Redemption gerði afar lítið í miðasölu vestan hafs þegar hún var frumsýnd þann 23. september árið 1994, fyrir sléttum tuttugu árum. Fangelsisdramað náði níunda sæti yfir tekjuhæstu myndirnar á frumsýningarhelginni og lenti aðeins rétt fyrir ofan Quiz Show með Robert Redford í aðalhlutverki en sú mynd var búin að vera í sýningu í fimm vikur á þeim tíma.

Miðasölutekjurnar náðu varla að dekka kostnað myndarinnar en þrátt fyrir að kvikmyndahúsagestir tækju ekkert sérstaklega vel í myndina, sem leikstýrt er af Frank Darabont, var hún tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna.

Tim Robbins og Morgan Freeman í hlutverkum sínum.
Myndin er byggð á Rita Hayworth and Shawshank Redemption, stuttri skáldsögu eftir Stephen King, sem á þessum tíma var hvað þekktastur fyrir að skrifa spennu- og hryllingssögur. Frank Darabont hafði áhyggjur af því að áhorfendur myndu halda að myndin fjallaði um Ritu Hayworth ef hann héldi titlinum og því stytti hann hann í The Shawshank Redemption. Einn af aðalleikurum myndarinnar, Morgan Freeman, heldur því hins vegar fram að það sé titli myndarinnar að kenna að hún hafi ekki gengið vel í kvikmyndahúsum.

Þeir sem hafa séð myndina ættu að kannast við söguþráðinn en hún fjallar um Andy Dufresne, sem Tim Robbins túlkar, en hann dúsir í nítján ár í Shawshank-fangelsinu fyrir að drepa eiginkonu sína og elskhuga hennar þrátt fyrir að hann haldi því fram að hann sé saklaus. Í fangelsinu vingast hann við Ellis Boyd „Red“ Redding, fanga sem leikinn er af Morgan Freeman.

The Shawshank Redemption á toppnum.
Eftir að myndin floppaði í bíó tók Warner Brothers glæfralega ákvörðun og pantaði 320 eintök af myndinni á VHS-spólum. Áhættan borgaði sig og spólan var sú mest leigða í Bandaríkjunum árið 1995. Í dag er hún einnig metsölumynd á DVD og Blu-ray.

The Shawshank Redemption hefur einnig haldið toppsætinu á lista IMDb yfir 250 bestu myndir allra tíma að mati notenda síðunnar í fjölmörg ár. Á listanum eru meistaraverk á borð við The Godfather, The Good the Bad and the Ugly og It's a Wonderful Life.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×