Íslenski boltinn

Stöðvar KR Valssóknina?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn Freyr Sigurðsson hefur verið óstöðvandi í síðustu leikjum.
Kristinn Freyr Sigurðsson hefur verið óstöðvandi í síðustu leikjum. vísir/stefán
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla um helgina. Klukkan 17.00 í dag mætast liðin í 3. og 4. sæti, Stjarnan og Breiðablik, í Kópavoginum. Von þessara liða um að vinna Íslandsmeistaratitilinn er orðin mjög veik en þau vilja eflaust bæði styrkja stöðu sína í baráttunni um Evrópusæti með sigri. Blikar unnu fyrri leikinn 1-3 og hafa unnið alla þrjá deildarleikina gegn Stjörnunni síðan Arnar Grétarsson tók við þjálfun liðsins.

Annað kvöld er svo annar stórleikur á dagskrá, á milli stórveldanna Vals og KR á Hlíðarenda. Valsmenn hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið síðustu þrjá leiki í deild og bikar með markatölunni 13-0.

Nafnarnir Kristinn Freyr Sigurðsson og Kristinn Ingi Halldórsson hafa verið sjóðheitir og skorað samtals 15 mörk í síðustu sjö leikjum Vals sem gæti endað umferðina í 2. sæti ef önnur úrslit verða hagstæð.

KR-ingar eru sömuleiðis á fínum skriði og hafa náð í 10 stig í síðustu fjórum leikjum sínum. Þeir verða þó án fyrirliða síns, Indriða Sigurðssonar, í leiknum annað kvöld en hann tekur út leikbann.

Topplið FH fer til Ólafsvíkur og sækir Víkinga heim. FH-ingar eru komnir með aðra höndina á áttunda Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins eftir sigurinn á Stjörnunni í síðustu umferð.

Fimleikafélagið er með sjö stiga forskot á toppnum og það verður að teljast ólíklegt að jafn sterkt og reynt lið og FH tapi því niður. Það gengur öllu verr hjá Ólsurum sem hafa ekki unnið leik í tvo mánuði.

Fylkismenn eru að renna út á tíma í botnbaráttunni og þurfa að sækja sigur í Grafarvoginn til að eiga möguleika á að spila í Pepsi-deildinni að ári. Lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar eru með 13 stig í ellefta og næstneðsta sætinu, fjórum stigum frá öruggu sæti. Fjölnismenn eru hins vegar í fínum málum í 2. sæti deildarinnar.

ÍA getur unnið þriðja leikinn í röð þegar liðið fær Víking R. í heimsókn. Skagamenn hafa unnið sjö af síðustu níu leikjum sínum og með sigri annað kvöld gera þeir sig gildandi í baráttunni um Evrópusæti.

Þá sækir botnlið Þróttar ÍBV heim. Staða Þróttara er nánast vonlaus en þeir eru heilum níu stigum frá öruggu sæti. Eyjamenn eru í fjögurra stiga fjarlægð frá fallsæti en þeir færu langt með að bjarga sér frá falli með sigri á Þrótti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×