Innlent

Stjórnvöld þurfi að beita sér frekar gegn stafrænum kynferðisbrotum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mál sundlaugarvarðarins á Sauðárkróki, sem grunaður er um að hafa myndað konur í kvennaklefanum, er grafalvarlegt og alls ekki einsdæmi, segir Helga Lind Mar, einn skipuleggjenda Druslugöngunnar. Stafrænt kynferðisofbeldi hafi færst mikið í aukana og því þurfi stjórnvöld að beita sér frekar í slíkum málum.

Lögð verður sérstök áhersla á stafrænt kynferðisofbeldi í göngunni í ár, en hún verður haldin í sjöunda skipti næstkomandi laugardag.

Helga Lind Mar er einn skipuleggjenda Druslugöngunnar. Gangan verður haldin í sjöunda skipti næstkomandi laugardag.vísir/sigurjón ó.
„Þarna er einstaklingur að taka upp myndefni eða myndir án vitundar þolanda og við vitum ekkert hvernig hann er að dreifa því eða hvað. En það skiptir ekki máli hvort hann sé að dreifa því, þetta er klárt brot,“ segir Helga. Um sé að ræða vaxandi vandamál, sérstaklega í ljósi síaukinnar tækni.

„Í umræðu síðustu ára erum við að sjá aukningu í þessu. Bara í sundklefum, í líkamsræktarstöðvum, þar sem fólk er með síma á lofti og þú veist aldrei hver er viljandi að taka myndir eða bara að skoða Snapchat-ið sitt.“

Helga segir að skilgreina þurfi lagarammann betur. „Það er verið að dæma í þessum málum út frá greinum í lögunum í dag, en við í Druslugöngunni viljum að þetta sé skilgreint betur í lögum og það eru ekki bara við. Það stendur svart á hvítu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, að það þurfi að skilgreina þetta betur í lögum, hvað er stafrænt kynferðisofbeldi, og í ár erum við að þrýsta á það að það verði staðið við þessi orð.“

DV greindi fyrst frá máli sundlaugarvarðarins, en maðurinn er grunaður um að hafa tekið fjöldann allan af ljósmyndum í kvennaklefa sundlaugarinnar á Sauðárkróki, og eru íbúar slegnir óhug vegna málsins.

Málið kom upp þann 14. júlí síðastliðinn og samkvæmt heimildum fréttastofu er maðurinn grunaður um að hafa haldið uppteknum hætti í mörg ár. Hann hafi myndað inn í klefann utan frá, en hann er ekki grunaður um að hafa sett upp myndavélar í klefanum. Þá er ekki talið að myndirnar hafi farið í dreifingu á netinu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×