Glamour

Stjörnurnar sem eiga von á sér árinu

Ritstjórn skrifar
Natalie Portman á von á sér á næstu mánuðum.
Natalie Portman á von á sér á næstu mánuðum. Myndir/Getty
Það er er fátt jafn fallegt og ólétt kona og það er nóg um það í Hollywood um þessar mundir. Hver stórstjarnan að fætur annarri á von á sér á næstu mánuðum. 

Þær Natalie Portman og Cheryl Cole verða líklega þær fyrstu til þess að eiga núna á næstu mánuðum en svo fylgir restin fast á eftir. Stjörnurnar eru ýmist að eignast sín fyrstu börn eða númer tvö. Krúttleg börn verða allavega ekki af skornum skammti árið 2017. 

Cheryl Cole er líklegast á lokametrunum um þessar mundir.
Marion Cotillard á von á sínu öðru barni ásamt eiginmanni sínum.
Ciara á von á sínu öðru barni. Þetta verður þó fyrsta barn hennar og Russell Wilson.
Irina Shayk og Bradley Cooper eiga von á barni. Hún gekk Victoria's Secret tískupallinn ólétt í nóvember.
Amanda Seyfried á von á sínu fyrsta barni ásamt unnusta sínum.
Zooey Deschanel og eiginmaður hennar, Jacob Pechenik, eiga von á sínu öðru barni. Fyrsta dóttir þeirra fæddist árið 2015 og ber nafnið Elsie Otter.





×