Bíó og sjónvarp

Stikla úr Hot Tub Time Machine 2

Stikla úr framhaldi kvikmyndarinnar Hot Tub Time Machine var frumsýnd af Paramount á Comic Con í gær. Myndin heitir Hot Tub Time Machine 2.

John Cusack, sem lék í fyrri myndinni, er ekki meðal leikara í framhaldinu en Adam Scott virðist hafa komið í hans stað.

Ásamt Scott leika í myndinni þeir Rob Corddry, Craig Robinson og Clark Duke, eftir sem áður.

Myndin verður frumsýnd vestanhafs á jóladag. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×