Innlent

Stendur fyrir maraþonsýningu á Hringadróttinssögu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Aðeins fimmtán af fjörutíu sóttu miðana sína.
Aðeins fimmtán af fjörutíu sóttu miðana sína.
Hin fjórtán ára Ólöf Lena Inaba Árnadóttir átti sér þann draum að sjá Hringadróttinssögu, eða Lord of the Rings, kvikmyndaþríleikinn í bíó en hún var of ung til að sjá myndirnar þegar þær komu út í upphafi síðasta áratugar. Hún tók sig því til og skipulagði maraþonsýningu á öllum þremur myndunum í Bíó Paradís í dag. Fjörtuíu miðar voru í boði og voru þeir allir fráteknir en aðeins fimmtán sóttu miðana sína.

„Þetta var bara draumur hjá henni að sjá þessar myndir í bíó,“ segir Anna Arnardóttir, móðir Lenu, aðspurð um hvað kom til að maraþonsýningin var skipulögð. „Við foreldrarnir að segja frá því þegar við höfðum farið á svona maraþon sýningu þegar þetta var sýnt á sínum tíma. Hún var svo svekkt að hafa misst af því að hún ákvað að reyna að fá svona sýningu í gang.“

Anna segir að vel hafi verið tekið í hugmyndina og að allir fjörtuíu miðarnir sem í boði voru hafi strax verið pantaðir. Í morgun, þegar fyrsta myndin átti að fara í gang, var hinsvegar aðeins búið að sækja fimmtán miða í miðasölu Bíó Paradísar.  Anna segir að Lena hafi ekki ætlað að hagnast á miðasölunni heldur aðeins ná fyrir kostnaði og því áfall að svo fáir sótti miðana sem þeir áttu pantaða.

Ef ekki næst að selja í sætin situr Lena uppi með tugþúsundakróna kostnað vegna sýningarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Bíó Paradís tekur salurinn 40 manns í sæti og er nú, þegar fyrsta myndin er að klárast, setið í um helmingi sætanna. Enn er því færi fyrir þá sem vilja sjá mynd númer tvö og þrjú – Tveggja turna tal og Hilmir snýr heim – að mæta í Bíó Paradís. Miðaverð er 3.000 krónur. Áætlað er að sýning á mynd númer tvö hefjist fljótlega upp úr tvö.

Ekki náðist í Lenu sjálfa en hún er stödd inni í bíósalnum að klára fyrstu myndina þegar þetta er skrifað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×