Skoðun

Stefna VG í málefnum ferðaþjónustu

Jakob S. Jónsson skrifar
Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur tekið saman stefnu í ferðamálum, sem á að stuðla að því að ný ríkisstjórn geti gert það sem stjórnvöld hefðu átt að vera löngu búin að gera, nefnilega leggja fram langtímaáætlun um þróun ferðaþjónustu á Íslandi.

Stefna VG í ferðamálum er metnaðarfull og byggir á náttúruvernd og markmiðum um haldbæra þróun. Það er nauðsynlegt, því nú þarf að gera þrennt:

1. bæta fyrir vanrækslu síðustu ára,

2. koma ferðaþjónustunni í nútímalegt horf útfrá sjónarmiðum náttúruverndar og

3. leggja línurnar til langs tíma, svo allir viti hvar þeir hafi ríkisvaldið, ekki síst sveitarfélögin.

Það er rétt að halda því til haga að einkaframtakið hefur unnið þrekvirki í að byggja upp góða og metnaðarfulla þjónustu við ferðamenn. Nú starfa 24 þúsund manns í ferðaþjónustu, fyrirtæki í ferðageiranum eru um 2.600 og fjöldi ferðamanna er nú orðinn á aðra milljón. Fyrir fáum árum nam fjöldi ferðamanna stærð þjóðarinnar, nú stefnir hann hraðbyri í að verða sex til sjöföld stærð þjóðarinnar. Það verður því að fara að ræða þolmörk af alvöru. Þolmörk náttúru, félagsleg þolmörk þjóðarinnar, þolmörk ferðamanna sjálfra.

Brestir sjást í innviðum hvert sem litið er. Stórátaks er þörf í viðhaldi vega, náttúruperlur líða fyrir ágang án fyrirhyggju, löggæslu- og öryggismál hafa setið á hakanum svo fátt eitt sé nefnt. Það má vísa til Ferðamálastofu, Stjórnstöðvar ferðamála og Samtaka aðila í ferðaþjónustu um tölur um þetta allt.

Stefna VG gerir ráð fyrir samráði við aðila ferðaþjónustunnar í smáu og stóru. Samráði við heimamenn, samráði við sveitarfélög, samráði við fyrirtækin, sem hafa byggt upp gríðarlega þekkingu í geiranum. VG vill mæta öllu þessu ágæta fólki með auknum framlögum til rannsókna á sviði ferðaþjónustu, vinna að framtíðarsýn og leggja línur um menntun í atvinnugeiranum öllum. Endurskoðun laga um þjóðgarða, þjóðlendur og friðlönd verður einnig í forgangi. En einkum og sér í lagi þarf að veita fyrstu hjálp vegakerfi og umhverfi náttúruvætta, sem liggja undir skemmdum, sumum óbætanlegum. Þá þarf að koma hinum svarta og gráa hluta ferðaþjónustunnar í ljós og vinna að því að ferðaþjónustan taki þá ábyrgð sem í því felst að vera atvinnuvegur stórs hluta erlends vinnuafls hér á landi og fyrsti viðkomustaður ungs fólks á vinnumarkaði.

Á öllum þessum sviðum er stórátaks þörf. VG heitir á góða krafta og velunnara ferðaþjónustunnar að taka höndum saman með VG á nýju kjörtímabili að koma því lagi á ferðaþjónustuna að hún haldi áfram að dafna sem einn mikilvægasti atvinnuvegur okkar og verði áfram stolt okkar og fjöregg!

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×