Innlent

Starfsfólk Caruso mætt fyrir utan staðinn: „Bara fleygja þessum vitleysingum út“

Kjartan Atli Kjartansson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Starfsfólk veitingastaðarins Caruso safnaðist saman fyrir utan staðinn á ellefta tímanum í morgun og var þar fram eftir degi. Fólkið var að sækja eigur sínar og önnur verðmæti í eigu fyrirtækisins og starfsmanna, sem eigandi hússins læsti inni.

Lögreglan mætti á staðinn um klukkan ellefu og ræddu lögreglumenn við húseigandann, Jón Ragnarsson, inni á staðnum auk þess þeir ræddu við Jose Garcia, eiganda veitingastaðarins.

Starfsfólk annarra veitingastaða í Reykjavík er á staðnum til þess að sýna samstöðu, auk þess eru þar fyrrum starfsmenn veitingasaðarins.

Uppfært klukkan 11:15. Byrjað er að hleypa starfsfólkinu inn á staðinn. Einum starfsmanni er hleypt inn á staðinn í einu. Þar inni eru lögreglumenn, Jón húseigandi og Jose veitingamaður. Þeir starfsmenn sem hafa farið inn til þessa hafa verið inni á staðnum í um fimm mínútur í senn.  Hér að neðan má sjá myndband af því þegar starfsfólki var hleypt inn á staðinn.

vísir/vilhelm
Blaðamenn Vísis voru á staðnum og ræddu þeir við Árna Hjartason, kokk á Caruso, rétt um ellefu, áður en starfsfólkinu var hleypt inn. Hann var mjög ósáttur við Jón Ragnarsson húseiganda og þykir aðgerðir hans vera hreint út sagt ótrúlegar. 

„Guð má vita hvað er í gangi í hausnum á þeim, þeir vaða inn í annarra manna rekstur og virðast bara, miðað við þeirra yfirlýsingar, að ætla að taka þetta yfir. Ég veit ekki hvernig í ósköpunum þeim dettur í hug að þeir komist upp með það,“ segir hann og bætir við:

„Nú erum við komin hérna hreinlega til að fara inn og ganga úr skugga að engu sé búið að stela og ekkert búið að skemma. Ganga frá matvælum og öðrum hlutum sem liggja hreinlega undir skemmdum.“

Árni segir að helst vildu starfsmennirnir geta opnað staðinn aftur hið snarasta: „Og bara fleygja þessum vitleysingum út. Við getum ekki látið menn komast upp með svona.“

Árni segist hafa heyrt af erfiðleikum í samskiptum við Jón húseiganda. „Hann hefur ekki verið sá auðveldasti.“

Þegar hann er spurður hvort að starfsfólkið óttist að það sé búið að tapa vinnunni segir Árni að hann trúi því ekki að menn komist upp með að taka húsnæðið með þessum hætti og segir starfsfólkið ekki ætla að láta þessi vinnubrögð viðgangast.

Jón Ragnarsson, húseigandi.Vísir/vilhelm
„Guð má vita hvað er í gangi í hausnum á þeim," segir Árni Hjartarson.Vísir/vilhelm
José Garcia, eigandi Caruso, ræðir við lögreglumenn.Vísir/vilhelm
Jose García sæki eigur sínar.Vísir/vilhelm
Elfa Hjörleifsdóttir hefur starfað á Caruso í sextán ár. Hún fór til að sækja sína persónulegu muni en fékk ekki alla. Hún segist til dæmis ekki hafa fengið tölvuna sína og fullyrðir að hún hafi verið inni á veitingastaðnum á mánudag. 'Hústaka á Íslandi um hábjartan dag,“ segir Elfa.

Tengdar fréttir

Veitingamaðurinn á Caruso læstur úti af húseigandanum

José Garcia, veitingamaður á Caruso, læstur úti af staðnum af húseigandanum vegna deilna um leigusamning. Mikið af eignum inni á staðnum og veggur reistur til að varna starfsfólki inngöngu. Kærði atvikið til lögreglu.

Lögreglan gerir ekki neitt í Caruso-málinu

Eigandi veitingastaðarins Caruso fær enga aðstoð frá lögreglu við að komast inn á staðinn eftir að húseigandinn réðst þangað inn og skipti um skrár. Sérfræðingur segir lögregluna með þessu viðurkenna það að menn taki lögin í sínar hendur.

Rekstur Caruso lamaður eftir yfirtöku

José Garcia veitingamaður á Caruso segir framkomu húseigenda ótrúlega og hann efist um að þessi framkoma þekkist í öðrum Evrópulöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×