Innlent

Stal þremur „fokdýrum“ úlpum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rólegt var hjá lögreglunni í kvöld.
Rólegt var hjá lögreglunni í kvöld. Vísir/Pjetur
Bíræfinn hnuplari hljóp á brott með þrjár úlpur úr verslun í miðbænum í kvöld án þess að borga fyrir þær.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þar segir að úlpurnar hafi verið „fokdýrar.“

Þá var tilkynnt um heimilisofbeldi í Hraunbæ í Árbæ rétt fyrir klukkan níu í kvöld en þar átti erlent par í deilum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×