Skoðun

Staðreyndir um Rannsóknir & greiningu

Inga Dóra Sigfúsdóttir skrifar
Vandaðar og vel unnar fréttir eru hornsteinn lýðræðislegrar umræðu. Góðir fréttamenn sem leitast við að greina og gagnrýna íslenskan samtíma og draga fram það sem satt er og rétt í hverju máli eru ómetanlegir. Blaðamenn sem stunda óvönduð vinnubrögð og draga upp ranga og ósanna mynd af málum grafa hins vegar undan trausti á fjölmiðla og skaða þannig lýðræðislega umræðu. Í liðinni viku var umfjöllun í Fréttablaðinu og á visir.is  um samstarf  Rannsókna og greiningar (R&G) og mennta- og menningarmálaráðuneytis þar sem farið var rangt með margar staðreyndir, að því er virðist í því skyni að sverta mannorð og starfsemi R&G. Ég tel mig knúna til að koma réttum upplýsingum á framfæri.

Sagt var...

Í umfjöllun Fbl er sagt að Rannsóknir & greining hafi verið stofnað „árið 1997 þegar Björn Bjarnason, þáverandi menntamálaráðherra“ hafi gefið rannsóknarhluta Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála (RUM) til „nýstofnaðs fyrirtækis, Rannsókna og greiningar“. Þá er sagt að ég hafi á þessum tíma verið í hálfu starfi fyrir Björn Bjarnason og í hálfu starfi hjá rannsóknardeild Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála (RUM).

Rétt er...

Hið rétta er að Rannsóknir & greining var stofnað árið 1999 eftir að Júlíus Björnsson, þáverandi forstöðumaður RUM óskaði eftir því að ég héldi rannsóknunum áfram, innan eða utan RUM. Ég starfaði fyrir Björn Bjarnason þrjá mánuði sumarið 1995 þegar ég tók saman fyrir hann skýrslu um stöðu menntamála í Evrópu, undir yfirskriftinni „Straumar og stefnur í menntamálum“. Frá árinu 1997 til 1999 starfaði ég hjá Rannsóknarráði Íslands, við gerð úttektar á íslensku vísindastarfi, sem kom út í bók árið 2000 og ber heitið „Grunnvísindi á Íslandi“.

Nánar um söguna...

Ungt Fólk rannsóknirnar hófust árið 1992 og fóru fyrstu árin fram undir formerkjum RUM. Þar starfaði ég ásamt leiðbeinanda mínum og upphafsmanni rannsóknanna, Þórólfi Þórlindssyni prófessor. Þeirri stofnun var svo breytt í Námsmatsstofnun árið 1997 og ungmennarannsóknunum hætt á sama tíma.  

Það er rétt að ítreka að ég átti ekki fumkvæðið að því að taka við Ungt fólk rannsóknunum. Það var að frumkvæði  Júlíusar Björnssonar, þáverandi forstöðumanns stofnunarinnar, sem hafði samband við mig í upphafi árs 1998 og óskaði eftir því að ég kæmi aftur til starfa á stofnuninni til að ljúka úrvinnslu úr Ungt fólk rannsókninni 1997 og að sama skapi að standa að framkvæmd ESPAD rannsóknarinnar sem fyrir lá að gera 1999, eða að öðrum kosti að taka við verkunum utan stofnunarinnar. Rannsóknirnar voru þegar á þessum tíma nýttar af  sveitarfélögum, forvarnaraðilum og skólafólki um allt land. Það voru því margir sem þurftu á upplýsingunum að halda, vegna starfa sinna í þágu ungs fólks.

Það hljómaði ekkert sérlega árennilega að taka ábyrgð á framhaldi rannsóknanna utan RUM, þar sem það lá skýrt fyrir að þeim fylgdi enginn fjárhagslegur stuðningur frá menntamálaráðuneytinu. Það var ekki fyrr en árið 2006 sem fyrri samningur Rannsókna & greiningar var gerður við ráðuneytið. Það ár, voru liðin sjö ár frá stofnun Rannsókna & greiningar, og búið að safna gögnum og vinna úr fjölmörgum rannsóknum.

En víkjum aftur að upphafinu. Eftir talsverðar viðræður okkar Júlíusar Björnssonar árið 1998 varð það niðurstaðan að heillavænlegast yrði að vinna áfram að Ungt fólk rannsóknunum utan RUM. Úrslitaástæðan var ekki síst sú að fólkið sem hafði starfað að þessum rannsóknum saman, var ekki lengur starfandi á RUM, og það lá fyrir að auðveldara yrði að stefna því saman utan stofnunarinnar. Rannsóknir & greining var því stofnað með þrenns konar markmið að leiðarljósi:

1. að sinna þekkingarsköpun og útbreiðslu þekkingar á málefnum ungs fólks.

2. að nýta þá þekkingu til að hafa áhrif á umhverfi og aðstæður ungs fólks OG

3. að skapa vettvang til kennslu og uppbyggingar ungra vísindmanna, sem þar fengju tækifæri til að spreyta sig með öðrum reyndari.

Aðgengileg og vel nýtt gögn

Hingað til hafa verið birtar um 70 vísindagreinar um Ungt fólk rannsóknirnar í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum sem finna má í gagnagrunnum, s.s. Web of Science, PubMed og Social Science Index. Auk þess hafa hundruð skýrslna verið skrifaðar sem nýttar hafa verið í þágu stefnumótunar og starfs með ungu fólki á vettvangi þeirra á Íslandi og í Evrópu. Við höfum lagt ríka áherslu á að rannsóknirnar séu aðgengilegar og að niðurstöður þeirra komist sem fyrst í hendur þeirra sem hafa mest not fyrir þær, þ.e. fagfólks sem starfar í þágu eða með ungu fólki innan sveitarfélaga, skóla og stofnana.  Þar liggur sérstaða rannsóknanna en engin önnur gögn úr íslenskum ungmennarannsóknum eru nýtt jafn víða með það að leiðarljósi að bæta hagi og líðan ungs fólks.

Leiðandi í Evrópu

Starf R&G byggir á þeirri hugmynd að hægt sé að bæta líðan, heilsu og hegðun ungs fólks með samvinnu rannsóknafólks, stefnumótunaraðila og fagfólks sem vinnur á vettvangi með börnum og unglingum. Undanfarin ár hefur aðferðarfræðin sem þróast hefur í tengslum við rannsóknirnar og sá árangur sem náðst hefur samhliða þeim á Íslandi spurst út víða um heim. Þetta hefur orðið til þess að rannsóknirnar og þær forvarnaraðgerðir sem á þeim byggja eru nú fyrirmynd forvarnarstarfs víða í Evrópu undir heitinu Youth in Europe.

Sagt var...

„...Rannsóknir & greining ehf. hefur frá árinu 2006 fengið yfir 50 milljónir króna frá hinu opinbera, í gegnum samning við menntamálaráðuneytið...“

Rétt er....

Tveir samningar hafa verið gerðir milli menntamálaráðuneytisins og Rannsókna & greiningar um Ungt fólk rannsóknirnar. Tilgangur þessara samninga var að menntamálaráðuneytið gerði sveitarfélögum kleift að fá upplýsingar um hagi og líðan ungs fólks, en slíkt er aðeins hægt ef rannsóknirnar eru lagðar fyrir. Fyrri samningurinn var gerður árið  2006  og hljóðaði hann upp á kr. 12.800.000. Og sá síðari árið  2009 upp á kr. 24.200.000.  Þetta þýðir að ráðuneytið hefur lagt fjárhæð sem nemur kr. 1.800.000 til 3.300.000 til hverrar Ungt fólk rannsóknar hingað til, en þær eru alls 14 talsins samkvæmt þessum samningum. Hlutur ráðuneytisins í  þessum rannsóknum samsvarar um 20%  af heildarkostnaði við gagnaöflun hverrar rannsóknar. Hinna 80% er aflað með starfsemi Rannsókna & greiningar. Auk þeirra 70 vísindagreina sem birtar hafa verið, hafa gögn R&G verið nýtt til að skrifa 7 doktorsritgerðir, og fleiri tugi meistara- og BA/BS ritgerða, við marga háskóla hér á landi og annars staðar.  Í það minnsta 3 doktorsritgerðir til viðbótar eru í farvatninu. Í samræmi við þriðja markmið Rannsókna & greiningar um að styðja ungt vísindafólk, hafa margir félagsvísindamenn, sem nú starfa ýmist á Íslandi eða erlendis, stigið fyrstu skref sín á vettvangi vísinda, í starfi hjá R&G.

Fagleg úttekt og samkeppni

Ég myndi fagna faglegri úttekt á rannsóknum R&G, þar sem fjallað væri um ávinning þeirra og hvort fjármunum hins opinbera væri mögulega betur varið eftir öðrum leiðum. Áhugavert væri að sjá hvar rannsóknir okkar standa  í samanburði við aðrar íslenskar æskulýðsrannsóknir varðandi kostnað, dreifingu, nýtingu á gögnum, birtingu á niðurstöðum í formi vísindagreina og skýrslna og svo framvegis. Að sama skapi myndum við fagna því að allt fjármagn til rannsókna á Íslandi væri leitt í gegnum samkeppnissjóði. Við mat á umsóknum til æskulýðsrannsókna, væri brýnt að taka tillit bæði til mikilvægis þeirra fyrir grunnvísindastarf og stefnumótun og starf á vettvangi. Þess má geta að sambærileg rannsókn, sem framkvæmd er árlega í Bandaríkjunum, Monitoring the future, hlýtur styrk úr samkeppnissjóði þeirra, NIDA. Styrkurinn sem þeir fengu árið 2014-2015 var 5 milljónir bandaríkjadala eða sem samsvarar ríflega 600 milljónum íslenskra króna. Þennan styrk fá þeir fyrir að leggja sambærilega rannsókn fyrir 15.000 ungmenni, sem er lítið stærri hópur en við leggjum venjulega fyrir, eða 12.000 ungmenni.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×