Skoðun

Staða aldraðra er mjög slæm

Björgvin Guðmundsson skrifar
Ef við lítum á kjör og aðstöðu eldri borgara hér á landi í dag, kemur í ljós, að staða aldraðra á Íslandi er mjög slæm. Kjörin eru almennt svo lág, að ekki er unnt að lifa mannsæmandi lífi af þeim. Við það bætist, að staða sjúkra eldri borgara er algerlega óásættanleg. Þeir verða að bíða mánuðum saman eftir að komast á hjúkrunarheimili. Og þegar þeir loks komast þar inn, eru heimilin stórlega undirmönnuð vegna fjárskorts. Sama er að segja um heimahjúkrun. Þó stjórnmálamenn tali um að efla heimahjúkrun, fylgja ekki athafnir orðum þeirra. Það er ekkert gert til þess að efla hjúkrun í heimahúsum. Heimahjúkrun er einnig stórlega undirmönnuð.

Eldri borgurum naumt skammtað

Ráðamenn þjóðarinnar ætlast til þess að einhleypur ellilífeyrisþegi, sem hefur engar greiðslur úr lífeyrissjóði og einungis lífeyri frá almannatryggingum, lifi af 192 þús. kr.á mánuði eftir skatt. En samkvæmt síðustu neyslukönnun Hagstofunnar, sem birt var, eru meðaltalsútgjöld einhleypinga til neyslu 321 þús kr. á mánuði. Engir skattar eru þar meðtaldir. Allir sjá hvílík gjá er þarna á milli. Dæmið gengur einfaldlega ekki upp með 192 þús. kr. á mánuði (eftir skatt). Ef sami ellilífeyrisþegi hefði 70 þús. kr. á mánuði úr lífeyrissjóði, hefði hann aðeins lítið meira í heildartekjur á mánuði vegna mikillar skerðingar TR. Þetta er líkast eignaupptöku. TR skerðir tryggingabætur um 40 þús. kr. á mánuði beinlínis vegna greiðslunnar úr lífeyrissjóði. Kvæntur ellilífeyrisþegi, sem eingöngu hefur tekjur frá TR, fær aðeins 172 þús.kr. á mánuði frá almannatryggingum.

Neikvæð afstaða stjórnvalda

Afstaða stjórnvalda til aldraðra og öryrkja er mjög neikvæð hér á landi. Annars staðar á Norðurlöndunum ræða stjórnvöld og samtök eldri borgara saman um það hvað unnt sé að gera til þess að bæta kjör og aðstöðu eldri borgara. Hér á landi stinga stjórnvöld kröfum og ályktunum eldri borgara undir stól og hafa engan áhuga á að ræða málin. Mannréttindi eru einnig ítrekað brotin á öldruðum og öryrkjum hér á landi.

Í lögum um málefni aldraðra segir, að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins. En þetta lagaákvæði er þverbrotið. Rannsóknir leiða í ljós, að biðtími aldraðra eftir meðferð á sjúkrastofnunum er lengri en þeirra, sem yngri eru. Í launa- og kjaramálum hafa eldri borgarar sætt annarri meðferð en launþegar. Kjörum eldri borgara hefur verið haldið niðri og þau skert á sama tíma og láglaunafólk hefur fengið kjarabætur. Embættismenn og alþingismenn hafa fengið leiðréttingu á sínum kjörum afturvirkt á sama tíma og kjör aldraðra hafa verið fryst. Eldri borgurum hefur verið mismunað freklega. Mannréttindi hafa ítrekað verið brotin á þeim.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×