Innlent

Spyr hvers vegna Bjarni segir ekki af sér

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Þorsteinn Víglundsson sagði að um pólitískan leik væri að ræða.
Þorsteinn Víglundsson sagði að um pólitískan leik væri að ræða. vísir/anton brink
„Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði áður lýst þeirri eindregnu skoðun sinni að sá ráðherra sem bryti jafnréttislög ætti umsvifalaust að segja af sér. En hann gerir ekki þá sömu kröfu til sjálfs síns og situr sem fastast,“ sagði Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag.

Oddný vísaði til úrskurðar kærunefndar jafnréttislaga þess efnis að Bjarni hefði í störfum sínum sem fjármálaráðherra brotið jafnréttislög þegar hann réð karl en ekki konu sem skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins, þrátt fyrir að umsækjendurnir tveir, karl og kona, hefðu verið metin jafnhæf.

Pólitískur leikur

Oddný vildi vita hvort brot sem þessi hafi í för með sér einhverjar afleiðingar, og spurði Þorstein Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hvort hann líti þetta alvarlegum augum. Þorsteinn sagðist treysta því að fjármálaráðuneytið bregðist sjálft við úrskurðinum og hvernig taka skuli á honum.

„Ég hef fullt traust á því að núverandi fjármálaráðherra ásamt stjórnsýslu ráðuneytisins muni gera það á réttan og skilvirkan hátt,“ sagði Þorsteinn.

Þorsteinn sagði að um pólitískan leik væri að ræða, enda hefðu þingmenn stjórnarandstöðunnar varið það þegar Jóhanna Sigurðardóttir braut jafnréttislög í störfum sínum sem forsætisráðherra árið 2011.

„Tækið er ekki til að koma pólitísku höggi á andstæðinga heldur tryggja jafnrétti innan stjórnsýslunnar og á vinnumarkaði almennt. Nú eru þingmenn stjórnarandstöðu sem áður vörðu brot á jafnréttislögum að gagnrýna og krefjast afsagnar. Staðan var öfug þegar aðrir voru í forystu. Það er einfaldlega pólitískur leikur sem ég nenni ekki að taka þátt í.“


Tengdar fréttir

Ögmundur braut jafnréttislög - réð karl en ekki konu sem sýslumann

Ögmundur Jónasson braut jafnréttislög þegar hann tók karl fram yfir konu í embætti sýslumanns á Húsavík. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Þar segir að kærunefndin jafnréttismála hafi komist að þeirri niðurstöðu að konan væri hæfari en karlinn í fjórum hæfnisþáttum af átta og jafnhæf í þremur.

Bjarni braut jafnréttislög

Bjarni Benediktsson braut jafnréttislög í störfum sínum sem fjármálaráðherra þegar hann skipaði karl í starf skrifstofustjóra ráðuneytisins, samkvæmt úrskurði kærunefndar jafnréttismála




Fleiri fréttir

Sjá meira


×