Innlent

Sprenging þegar metangasi var dælt á própangaskút á stöð N1 við Bíldshöfða

Atli Ísleifsson skrifar
Sprenging varð þegar erlendur ferðamaður reyndi að dæla metangasi á própangaskút í húsbíl á stöð N1 við Bíldshöfða á öðrum tímanum í dag.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, segir að engar upplýsingar hafi fengist um slys á fólki.

Slökkvilið var sent á vettvang vegna sprengingarinnar.

Vísir/Friðrik þór halldórsson
Mynd/Jarosław Ganiec
Vísir/Friðrik þór halldórsson

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×