Lífið

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Þú gætir verið svolítið kvíðinn þegar september kemur en það kemur í ljós.
Þú gætir verið svolítið kvíðinn þegar september kemur en það kemur í ljós.
Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim. Það er mikilvægt fyrir þig að skoða það að þú þarft að gefa þér mikið sjálfstæði næstu mánuðina og vera ákveðinn í því að sigra!

Þó svo að þér finnist þú búinn að vera aleinn í lífsins amstri þá er það það sem gerir þig miklu sterkari. Þú ert að koma svo sterkur til leiks og ert að hrista af þér mennsk sníkjudýr sem hafa verið að lifa á orkunni þinni eða góðsemi í töluverðan tíma. Þú hefur ekkert að gera við þessa dragbíta.

Þú gætir verið svolítið kvíðinn þegar september kemur en það kemur í ljós að þú átt eftir að standa þig með þvílíkum sóma. Best er að treysta og trúa því að ekkert geti stoppað þig og þó þetta verði ekki alveg einfaldasta leiðin þá áttu eftir að finna miklu meiri ástríðu fyrir því sem þú ert að gera og þegar ástríðan grípur þig, elsku sporðdrekinn minn, „then the sky's the limit“.

Þó svo að þú eigir eftir að gráta aðeins þá sérðu bara skýrar eftir það því tárin hreinsa rykið úr augum þínum.

Það er mjög mikilvægt að taka enga ákvörðun þegar þú ert reiður, skrifaðu ekkert niður nema þú viljir að allir sjái það.

Frami þinn á þessu ári byggist á næstu skrefum, þeim sem þú ætlar að taka í september! Ef þú ert sjálfstætt starfandi eða að fara i nám þá er svarið: „Já þetta er að koma.“

Mottó: Ég get, ég ætla, ég skal.

Frægir Sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti, rappari. 


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×