Innlent

Spice nýja tískudópið á Litla-Hrauni

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Spice er hið nýja tískudóp fanga á Litla-Hrauni. Spice er manngert kannabis og getur tekið nánast hvaða form sem er.

Algengast er að það sé líkt eftir kryddi en þaðan kemur nafnið. Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að fangelsið hafi aukið eftirlit með notkun spice en það mældist ekki áður við sýnatöku fanga.

„Við erum byrjaðir að finna Spice innan veggja fangelsisins. Það hafa komið upp þó nokkur tilvik á stuttum tíma en er hægt að kalla það faraldur,“ segir Halldór. Efnið kom fyrst á borð fangelsisyfirvalda hér á landi fyrir um níu árum þegar fangar á Norðurlöndum byrjuðu að reykja það í fangelsum í Skandinavíu en það tók langan tíma að berast til Íslands.

„Spice getur litið alla vega út, eins og kaffikorgur, krydd eða hvað sem er. Við erum vakandi hér á Litla-Hrauni og erum oft að finna alveg ótrúlegustu hluti frá gestum og föngum hvort sem það er spice, sýra eða annað sem er verið að reyna að koma til fanga. Stutt er síðan við fundum sýru sem leit út eins og blaðsnepill og bar ekki nein önnur merki en að vera blaðsnepill. En okkur fannst eitthvað grunsamlegt við að koma með eitt blað inn í fangelsið og prófuðum blaðsnepilinn. Hann reyndist vera sýra.

Það er allt reynt eins og dæmin sanna og það mun ekkert breytast. Það eru alltaf einhverjir sem vilja koma eitri inn fyrir veggi fangelsisins. Við erum að búa okkur betur undir fleiri tilvik af spice og þó það sé erfitt vegna þess hve fá áhöld eru til að greina efnin sem eru í spice, þá eru þau til.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×