Sport

Sparkaði í magann á óléttri unnustu sinni

Ray McDonald.
Ray McDonald. vísir/getty
Ray McDonald á enga framtíð fyrir sér í NFL-deildinni eftir að hafa ítrekað gengið á skrokk á fyrrum unnustu sinni.

San Francisco 49ers lét hann flakka í desember síðastliðnum vegna heimilisofbeldis og Chicago Bears leysti hann undan samningi í síðasta mánuði af sömu ástæðum.

Fram kemur í réttarskjölum að fyrrum unnusta hans og barnsmóðir mátti þola mikið, og ítrekað, ofbeldi af hendi McDonald.

Eftir að þau trúlofuðu sig í febrúar á síðasta ári þá breyttist McDonald. Hann reyndi einu sinni að kyrkja unnustu sína og sparkaði síðan með hnénu í magann á henni er hún var ólétt. Þá sótti hún um nálægðarbann á McDonald sem hann hefur brotið.

Í lok maí réðst hann á hana þar sem hún hélt á barni þeirra. Í kjölfarið var hann handtekinn og missti sama dag samning sinn við Chicago.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×