Fótbolti

Sonni Ragnar kom Færeyingum á bragðið | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sonni Ragnar skoraði fyrra mark Færeyja í sigrinum á Lettum.
Sonni Ragnar skoraði fyrra mark Færeyja í sigrinum á Lettum. vísir/andri marinó
Níu leikir fóru fram í Evrópuhluta undankeppni HM 2018 í kvöld.

Hollendingar, Frakkar og Svíar eru allir með fjögur stig í A-riðli eftir sigra í kvöld.

Frakkar, silfurliðið frá EM í sumar, lentu undir gegn Búlgörum á Stade de France þegar Mihail Aleksandrov skoraði úr vítaspyrnu á 6. mínútu.

Markið sló Frakka ekki út af laginu og Kevin Gameiro, sem komst ekki í EM-hópinn, jafnaði metin á 23. mínútu. Þremur mínútum síðar kom Dimitri Payet heimamönnum yfir og Antonie Griezmann skoraði svo þriðja markið sjö mínútum fyrir hálfleik. Aðeins eitt mark var skorað í seinni hálfleik en það gerði Gameiro á 59. mínútu.

Quincy Promes skoraði tvö mörk þegar Hollendingar lögðu Hvít-Rússa að velli, 4-1, í Rotterdam. Davy Klaassen og Vincent Janssen voru einnig á skotskónum fyrir Holland sem byrjar þessa undankeppni mun betur en þá síðustu.

Aðeins eitt mark var skorað þegar Lúxemborg og Svíþjóð mættust á Stade Josy Barthel í Lúxemborg. Það gerði bakvörðurinn Mikael Lustig á 58. mínútu.

Cristiano Ronaldo skoraði fernu þegar Portúgal rúllaði yfir Andorra á heimavelli í B-riðli. Lokatölur 6-0, Evrópumeisturunum í vil en þeir töpuðu fyrir Sviss í 1. umferðinni. Joao Cancelo og Andre Silva komust einnig á blað í portúgalska liðinu. Andorra, sem er án stiga í riðlinum, missti tvo leikmenn af velli með rautt spjald í leiknum í kvöld.

Sonni Ragnar Nattested, leikmaður FH, skoraði fyrra mark Færeyja í óvæntum 0-2 sigri á Lettlandi í Ríga. Sonni Ragnar, sem lék sem lánsmaður með Fylki seinni hluta sumars, kom Færeyingum yfir á 19. mínútu og Joan Simun Edmundsson bætti öðru marki við 20 mínútum fyrir leikslok. Gunnar Nielsen, markvörður Íslandsmeistara FH, stóð í marki Færeyja í kvöld og hélt hreinu líkt og í 1. umferðinni gegn Ungverjum.

Færeyingar eru í 2. sæti B-riðils með fjögur stig, tveimur stigum á eftir Svisslendingum sem unnu dramatískan sigur á Ungverjum í Búdapest.

Sviss komst þrisvar yfir í leiknum en Adam Szalai jafnaði í tvígang. Varamaðurinn Valentin Stocker skoraði sigurmark gestanna á lokamínútu leiksins.

Belgar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir skelltu Bosníu, 4-0, í H-riðli. Belgía hefur unnið báða leiki sína í riðlinum líkt og Grikkland sem vann 2-0 sigur á Kýpur í nágrannaslag.

Eden Hazard, Toby Alderweireld og Romelu Lukaku skoruðu mörk Belga auk þess sem Emir Spahic, fyrirliði Bosníu, gerði sjálfsmark.

Í sama riðli vann Eistland 4-0 sigur á Gíbraltar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×