Fótbolti

Sölvi og félagar með mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sölvi í galla liðsins.
Sölvi í galla liðsins. Vísir/Heimasíða FC Ural
Sölvi Geir Ottesen og félagar í Ural unnu lífsnauðsynlegan sigur á FC Ulfa í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Sölvi Geir spilaði allan leikinn í liði Ural, en Aleksandr Erohin skoraði eina mark leiksins eftir 42. mínútur. Þannig urðu lokatölur.

Eftir sigurinn er Ural með fjögur stig eftir átta leiki og lyfti sér upp í þréttanda sæti deildarinnar, af sextán liðum. FC Ulfa er í því ellefta.

Ragnar Sigurðsson og félagar í Krasnodar mæta Amkar á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×