Fótbolti

Sölvi með sjálfsmark í sigri

vísir/arnþór
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn í liði Jiangsu Sainty þegar liðið vann góðan sigur á útivelli gegn Chongquing Lifan með þremur mörkum gegn tveimur.

Sölvi Geir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark níu mínútum fyrir leikslok en það kom ekki að sök. Viðar Örn Kjartansson byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður á 82. mínútur.

Jiangsu Sainty er í 5. sæti með 19 stig eftir 12 leiki. Næsti leikur liðsins er á miðvikudaginn gegn Henan Jianye.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×