Innlent

Sóley í stað Lífar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Líf Magneudóttir og Sóley Tómasdóttir.
Líf Magneudóttir og Sóley Tómasdóttir. vísir/ernir
Samþykkt var á fundi borgarstjórnar í gærkvöld að Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, skyldi taka sæti Lífar Magneudóttur flokkssystur sinnar í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Þá verður Sóley jafnframt formaður ráðsins.

Sjá einnig: Sóley ýtir Líf til hliðar

Þetta var samþykkt á níunda tímanum í gærkvöldi. Sex  sátu hjá í atkvæðagreiðslunni; Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Jóna Björg Sætran í Framsókn, Halldór Auðar Svansson Pírati og Elsa Yeoman í Bjartri framtíð.

Líf hafði gegnt formennsku í mannréttindaráði borgarinnar um nokkurt skeið. Hún var skipuð formaður ráðsins þegar meirihluti var myndaður í borginni í júní 2014 en á sama tíma tók Sóley við hlutverki forseta borgastjórnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×