Innlent

Sóley að hætta í borgarstjórn

Samúel Karl Ólason skrifar
Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir. Vísir/Anton
„Ég mun kveðja borgarstjórn eftir tíu viðburðarík ár, þakklát fyrir þá dýrmætu reynslu sem ég hef öðlast og stolt af þeim verkum sem ég hef fengið að koma til leiðar.“ Þetta skrifar Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi, Vinstri grænna, á Facebook síðu sína í dag.

Hún ætlar að flytja með fjölskyldu sinni til Hollands í haust, þar sem hún mun fara í meistaranám í uppeldisfræði.

Sóley verður áfram borgarfulltrúi fram á haust. Hún segist ætla að leggja sig fram um að koma sem mestu til leiðar á þeim tíma. Þá segist hún ekki vera hætt í pólitík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×