Innlent

Sókndjarfur stórmeistari heiðursborgari í Reykjavík

Heimir Már Pétursson skrifar

Friðrik Ólafsson stórmeistari var í dag útnefndur heiðursborgari Reykjavíkur. Borgarstjóri sagði við það tækifæri að Friðrik væri hógvær heiðursmaður af gamla skólanum sem átt hefði stóran þátt í að koma Reykjavík á kortið út í hinum stóra heimi.

Reykjavíkurborg er mjög spör á heiðursborgaratitilinn. En Friðrik Ólafsson er aðeins sjötti maðurinn til að hljóta þennan titil frá því Reykjavík öðlaðist kaupstaðarréttindi árið 1786.

Áður höfðu Séra Bjarni Jónsson, Kristján Sveinsson augnlæknir, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, myndlistarmaðurinn Erró og listakonan Yoko Ono hlotnast þessi heiður.



Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fór stuttlega yfir feril Friðriks í Höfða í dag og sagði árangur hans í skáklistinni og tengsl inn í skákheiminn hafa komið Reykjavík á kortið en stórmeistarinn kann líka að slá á létta strengi. Því þegar Dagur sagði í ræðu sinni að hann hefði verið sókndjarfur skákmaður, bætti hinn áttræði skákmaður því við „að hann væri það enn.“



En Friðrik varð áttræður síðast liðinn mánudag en ætlar að tefla með B-liði Íslands á næsta Reykjavíkurskákmóti.



Til staðfestingar þess að hann væri nú orðinn heiðursborgari fékk Friðrik heiðursskjal og blómvönd ásamt gjöf frá borginni. En það var einnig tilkynnt við athöfnina að hann hefði verið útnefndur heiðirsfélagi Alþjóða skáksambandsins.  Friðrik telfdi níu sinnum við Bobby Fisher, fyrst árið 1958. Hann sagði brosandi að kannski ætti hann ekkert að vera að rifja upp skákir þeirra. En Friðrik vann tvær og tapaði sjö skákum og bætti við að hann hefði verið með svart í öllum ksákunum, sem væri talið verra.



En hann er borginni þakklátur fyrir heiðursborgaratitilinn sem bætist við fjölmarga titla hans út skákheiminum.



„Þetta er eitthvað sem mér þykir innilgea vænt um og er þakklátur fyrir þennan heiður og ég vona að ég standi undir honum,“ sagði Friðrik Ólafsson í Höfða í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×