Innlent

Smalaði fólki í flokkinn en braut ekki reglur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þórður sagði í stöðuuppfærslu á Facebook að hann hefði fengið nokkra vini og ættingja til að kjósa sig.
Þórður sagði í stöðuuppfærslu á Facebook að hann hefði fengið nokkra vini og ættingja til að kjósa sig.
Úrskurðarnefnd Pírata telur að Þórður Guðsteinn Pétursson hafi stundað kosningasmölun í aðdraganda prófkjörs flokksins í Norðvesturkjördæmi. Þar sem að regla sem bannar kosningasmölun tók ekki gildi fyrr en eftir að smölun lauk hefur það engin áhrif.

Framkvæmd prófkjörsins var kærð af framkvæmdastjóra Pírata og kosningastjóra flokksins. Þeir kölluðu eftir úrskurði nefndarinnar um það hvort Þórður hefði gerst sekur um smölun eftir að umræður þess efnis spruttu upp á Pírataspjallinu.

Sjá einnig:Oddvitinn í Norðvestur vísar ásökunum um smölun til föðurhúsanna

Úrskurðarnefndin leitaði álits kerfisstjóra Pírata en hann taldi ýmislegt benda til þess að Þórður hefði smalað fólki. Meðal þess var að af þeim 95 sem greiddu atkvæði voru átján sem settu Þórð í fyrsta sæti en röðuðu engum öðrum.

Í stöðufærslu á Facebook viðurkenndi Þórður einnig að hafa fengið systkin sín auk tuttugu til þrjátíu aðra til að skrá sig og kjósa sig. Taldi úrskurðarnefndin því að um kosningasmölun hefði verið að ræða.

„Tilgangur siðareglna í prófkjörsreglum Pírata í NV-kjördæmi var að sporna gegn slíkri smölun. Þessar reglur voru samþykktar á fundi kjördæmaráð þann 10. júlí 2016. Í þeim sömu reglum kom fram að aðeins þeir sem skráðir höfðu verið í Pírata 30 dögum fyrir upphaf prófkjörs hafi til þess kosningarétt. Prófkjörið hófst þann 8. ágúst og því gátu einungis þeir sem voru skráðir í Pírata þann 9. júlí eða fyrr tekið þátt. Því er ljóst að kosningasmölunin hafi átt sér stað áður en reglurnar sem banna slíkt voru settar.“ Af þeim sökum braut Þórður ekki af sér.

Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni var landskosningu Pírata, um staðfestingu listans, slegið á frest. Þeirri frestun hefur nú verið aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×