Sport

Smakkaði hundamat skömmu fyrir keppni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Serena með Chip, hundinn sinn.
Serena með Chip, hundinn sinn. Vísir/Getty
Serena Williams ákvað skyndilega að prófa mat sem hún hafði pantað fyrir hundinn sinn, nokkrum klukkustundum fyrir mikilvægan leik á móti í Róm á dögunum.

„Ég hugsaði með mér að prófa þetta bara - þetta leit vel út,“ sagði hún en samkvæmt matseðlinum var um blöndu af lax og hrísgrjónum.

„Tveimur klukkustundum síðar hljóp ég á klósettið enda leið mér eins og að það ætlaði að líða yfir mig. Þetta bragðaðist eins og hreinsiefni.“

Williams vann reyndar umrædda viðureign, gegn hinni bandarísku Christina McHale, í tveimur settum.

„Ég þvingaði mig til að kyngja þessu. Ég veit ekki hvað er sett í hundamat en Chip virtist hrifinn af þessu.“

Myndbandið af atvikinu setti hún á Snapchat og má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×