Innlent

Slösuð göngukona sótt á Hesteyri

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint en er þó af Læknishúsinu á Hesteyri.
Myndin tengist fréttinni ekki beint en er þó af Læknishúsinu á Hesteyri. Visir/vesturferdir.is
Björgunarsveitir frá Ísafirði, Bolungarvík og Hnífsdal eru nú á leið á Hesteyri á Ströndum að sækja slasaða göngukonu. Konan, sem var á ferð með hópi, er talin fótbrotin eftir að hún missteig sig illa.

22 björgunarmenn og tveir sjúkraflutningamenn sigla nú á björgunarskipinu Gunnari Friðrikssyni og tveimur björgunarbátum yfir Djúp. Áætlað er að fyrstu björgunarsveitarmennirnir komi að landi á Hesteyri eftir nokkrar mínútur. Veður á svæðinu er ágætt en kaldi er í Djúpinu og nokkur öldugangur. Bera þarf hina slösuðu 2-3 km leið til að koma henni í björgunarskip.

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út og er búist við að hún verði komin á slysstað um klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×