Innlent

Slaka á kröfunni um utanþingsráðherra

Sveinn Arnarsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir er vongóð um að hægt verði að vinna hratt næstu daga.
Katrín Jakobsdóttir er vongóð um að hægt verði að vinna hratt næstu daga. vísir/eyþór
Þingflokkur Pírata mun setja fram tillögu í grasrót flokksins í lok vikunnar um að slaka á kröfum um að ráðherrar sitji ekki sem þingmenn á sama tíma. Þingflokkurinn stendur allur á bak við þá tillögu.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, segir flokka ekki geta sagt öðrum flokkum hvernig þeir skipa ráðherra í ríkisstjórn.

Píratar, Samfylking, Björt framtíð, Viðreisn og VG hafa skipað fulltrúa sína í hópa sem skipta með sér verkum í vikunni. Segja má að með því séu stjórnarmyndunarviðræðurnar orðnar formlegar.

„Hóparnir munu vinna næstu daga og í þeirri vinnu mun koma í ljós hvort af þessu samstarfi geti orðið,“ segir Katrín Jakobsdóttir. „Auðvitað er það þannig að aðstæður í pólitíkinni eru þannig að nokkur óvissa ríkir og því þurfum við að halda vel á spöðunum framundan. Þetta er ekki eins og þegar tveir flokkar settust niður eftir kosningar og mynduðu ríkisstjórn.“

Formenn allra flokkanna fimm eru sammála um að gott andrúmsloft hafi verið á fundum helgarinnar þar sem menn hafi almennt verið lausnamiðaðir og vel hafi gengið að ræða hin ýmsu mál. Þó sé það enn í stefnu Pírata að flokkurinn setjist ekki í ríkisstjórn þar sem ráðherrar séu einnig þingmenn. Þessi stefna þeirra kann að breytast á næstu dögum sem fyrr segir.

„Það er mín skoðun að flokkar geti ekki sett hverjir öðrum svona skilyrði, það er bara þannig,“ segir Katrín.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Píratar og Viðreisn lýsa yfir samstarfsvilja

Formenn Pírata og Viðreisnar blása á sögusagnir um lítinn samstarfsvilja sín í milli. Flokkarnir hafa þótt líklegastir til að vera ljón í vegi við myndun fimm flokka ríkisstjórnar undir stjórn Vinstri grænna. Mál skýrast betur um helg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×