Glamour

Slær enn eitt metið á Instagram

Ritstjórn skrifar
Bandaríska söngkonan Selena Gomez tilkynnti í ágúst að hún þyrfti að aflýsa því sem eftir var af tónleikaferð sinni Revival vegna þunglyndis af völdum sjúkdómsins rauðra úlfa. Í kjölfarið tók hún sér frí frá samfélagsmiðlum og hefur ekki birt neitt í rúman mánuð.

Það hefur þó ekki komið í veg fyrir það að Selena er búin að slá enn eitt metið á miðlinum Instagram, hún er fyrsta manneskjan til þess að ná 100 milljónum fylgjenda.

Selena var fyrir sú manneskja á Instagram með flesta fylgjendur en æstir aðdáendur Selenu tóku eftir því að hún nálgaðist 100 milljónir og komu af stað herferðinni #SelenaBreakTheInternet sem tókst líka svona glimrandi vel.

when your lyrics are on the bottle #ad

A photo posted by Selena Gomez (@selenagomez) on






×