Innlent

Skúta strönduð undan Gufunesi

Randver Kári Randversson skrifar
Björgunarsveitin Ársæll var kölluð út fyrr í kvöld þegar tilkynning barst um strandaða skútu skammt undan Gufunesi við Reykjavík. Sveitin fór á staðinn á björgunarbátnum Þórði Kristjánssyni en bátur frá Snarfara var fyrstur á staðinn. Fjórir voru um borð skútunni, tveir eru komnir í land en skipstjórinn bíður við annan mann um borð.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að enginn leki hafi komið að skútunni og veður sé ágætt svo ekki sé talin mikil hætta á ferðum. Reyna á að draga skútuna á flot á flóði sem er á fimmta tímanum í nótt. Björgunarbáturinn er áfram á staðnum til öryggis og björgunarskipið Gróa P er lagt úr höfn og mun aðstoða við að draga skútuna á flot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×