Innlent

Skora á Alþingi að lækka tryggingagjaldið

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir
Rúmlega 300 stjórnendur úr atvinnulífinu hafa skorað á Alþingi að lækka tryggingagjaldið. Þeir segja að þrátt fyrir að vel gangi í atvinnulífinu og að atvinnuleysi hafi minnkað sé það tryggingagjald sem renni meðal annars til greiðslu atvinnuleysisbóta enn í hæstu hæðum. Árlegt gjald sé um 20 til 25 milljörðum krónum hærra en það ætti að vera.

„Engin áform virðast um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi. Það hefur verið 3% síðustu 12 mánuði og fer enn minnkandi, en tryggingagjaldið er svipað og þegar atvinnuleysi var 8-9% á árunum 2009-2010. Þessu mótmæla stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum út um allt land og hvetja Alþingi til að láta verkin tala og lækka gjaldið,“ segir í áskoruninni. Ítrekað hafi komið fram á undanförnum tveimur árum hjá fulltrúum allra flokka að rétt væri að lækka gjaldið.

Þá er bent á að tryggingagjaldið komi harðast niður á litlum og meðalstórum fyrirtækjum þar sem flest ný störf verði til. Fyrirtæki sem sé með tíu starfsmenn í vinnu greiði í raun laun þess ellefta, sem þó sé ekki við störf. Hátt tryggingagjald minnki getu fyrirtækja til að hækka laun eða ráða fleiri í vinnu og takmarki svigrúm fyrirtækja til að stunda rannsóknir, þróun og nýsköpun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×