Innlent

Skólakerfið ekki aðlagast tæknibreytingum

Helga Arnardóttir skrifar
Jón Torfi Jónasson, deildarforseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Jón Torfi Jónasson, deildarforseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands segir íslenska skólakerfið ekki hafa tekið nægilega miklum breytingum samhliða tæknibyltingunni og þróun spjaldtölva og snjallsíma. Hann telur tregðu ríkja í kerfinu og breyta þurfi kennsluaðferðum í takt við nýja tíma.

Í fréttum í gær var rætt við Dr.William Rankin háskólaprófessor í Texas. Hann hefur gjörbreytt sínum kennsluaðferðum með tilkomu spjaldtölva og snjallsíma. Hann segist æ sjaldnar halda fyrirlestra og kennslan fari sjaldnar fram í kennslustofum. Í staðinn fari fram mikil hópavinna og nemendum sé kennt að vinna með allar þær upplýsingar sem þeir hafi aðgang að. Afköstin séu verulega góð og nemendur áhugasamir. En hvernig er þróunin á Íslandi?

„Það er gríðarleg tregða en vel meinandi tregða gegn breytingum og fullorðna fólkið þekkir tiltekna hluti sem það vill að börnin læri osfrv," segir Jón Torfi Jónasson forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem telur íslenska skólakerfið ekki bregðast nægilega hratt við örum tæknibreytingum.

„Þá ítreka ég það að það snýst ekki um tölvurnar út af fyrir sig, heldur hvað það er sem við kennum ungu fólki og hvaða menningu við leiðum það inn í. Það er alveg ljóst í mínum huga að skólakerfið áttar sig ekki á þeirri breytingu sem þegar er orðin í lífi ungs fólks með þeirri nýju tækni sem er allt í kringum okkur."

„Þetta er auðvitað glíma sem er alls staðar í heiminum ekki einungis á Íslandi. Við þurfum að mínu mati að bregðast mun hraðar við en við höfum gert ef við ætlum að vera í takt við þær breytingar sem eru að verða. Þetta er fyrst og fremst menningarlegt atriði ekki einungis tæknilegt."

Nokkrir grunn- og framhaldsskólar hér á landi hafa tekið upp spjaldtölvur í kennslu sem þykir framfaraskref en Jón Torfi segir það ekki nóg því kennsluaðferðirnar hafi lítið breyst.

„Reynslan hefur verið af tölvuvæðingu undanfarna áratugi er að við höfum tekið þessa nýju tækni til að gera betur gamla hluti, það er að segja það sama og við höfum alltaf gert. Þetta þarf að breytast. Spjaldtölvurnar verða örugglega úreltar eftir nokkur ár og inn kemur ný tækni sem við eigum að notfæra okkur að gera alveg nýja hluti."

Fyrr á þessu ári fór fram umræða um mikla netnotkun nemenda í kennslustundum og áhugaleysi þeirra í tímum. Ber þetta merki um kynslóð sem þarf aðra nálgun?

„Svarið við þessu er já, við ættum sennilega að breyta þessum kennslustundum og líta í eigin barm frekar en að vera alltaf að kvarta yfir nemendunum." segir Jón Torfi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×