Innlent

Skoða að koma fyrir gæludýragrafreit á Patreksfirði

Bjarki Ármannsson skrifar
Engan gæludýragrafreit er að finna á Patreksfirði sem stendur.
Engan gæludýragrafreit er að finna á Patreksfirði sem stendur. Vísir/Jón Sigurður
Skipulags- og umhverfisráð Vesturbyggðar hefur falið tæknideild sveitarfélagsins að finna hentugan stað fyrir gæludýragrafreit á Patreksfirði. Þetta var ákveðið á fundi ráðsins síðastliðinn mánudag.

Það var gröfumaður á Patreksfirði sem sendi ráðinu erindi og vakti athygli á því að slíkan grafreit er ekki að finna í bænum. Nefnir hann að koma mætti grafreitnum fyrir neðan við gamla knattspyrnuvöllinn í Drengjaholti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×