Lífið

Skíða- og brettastjörnur sýndu listir sínar

Gunnar Leó Pálsson skrifar
PK Hunder sem er í norska landsliðinu í free ski sýndi flott tilþrif.
PK Hunder sem er í norska landsliðinu í free ski sýndi flott tilþrif. Mynd/Sigurður Svansson
„Þetta gekk órtúlega vel. Það var leiðinlegt veður á fimmtudag og föstudag en svo fengum við frábært veður á laugardag,“ segir Sigurður Svansson viðburðarstjóri en Iceland Winter Games fór fram í Hlíðarfjalli um liðna helgi. Um 80 keppendur tóku þátt í vetrarleikunum og þar af voru fjölmargir erlendir keppendur mættir til leiks.

„Það var fullt af fólki sem mætti á svæðið og má eiginlega segja að þetta hafi gengið vonum framar.“ Þetta er í fyrsta sinn sem vetrarleikarnir fara fram. „Nú hefur verið staðfest að mótið verð platinum-mót á næsta ári, þannig að þetta stækkar talsvert á næsta ári," bætir Sigurður við.

Fjöldi fólks í fjallinu
Norðmaðurinn Marcus Klevland sigraði í snjóbrettakeppni yngri en 16 ára. Annar Norðmaður, Siver Voll, sigraði í fullorðinsflokki í skíðafimi með frjálsri aðferð og landi hans Trym Andreassen í flokki yngri en 16 ára.

Úrslit freeski 16 ára og eldri:

1. Siver Voll frá Geilo Noregi. Hann var sigurvegari á Norwegian open slopestyle 3 ár í röð. Hann var í 2. sæti á Norwegian open í samanlögðum árangri og og keppti til úrslita 2013 Noregsmeistari 2013 og 2012

2. Jens Johnson frá Noregi er í norska landsliðinu í free ski og keppir á heimsmeistaramótinu í greininni á næsta ári.

3. PK Hunder frá Noregi er í norska landsliðinu í free ski . Hann var í 14.sæti á Vetrarólympíuleikunum. Hann er búinn að taka þátt í X games í 5 skipti, lenti í 3.sæti í Frostgun í Frakklandi í febrúar sl. og er í 12 sæti á heimslista AFP.

Fallegt umhverfi
Yngri flokkur

1. Trym Sunde Andreassen frá Noregi býr í kongsberg 14 ára og er Noregsmeistari í sínum aldursflokki. Sigurvegari á Norwegian open 2013.

2. Erland Bassøe-Eriksen 15 ára frá Noregi efnilegur skíðari sem sló í gegn á Iceland Winter Games 2014.

3. Julian Lund Olsen 14 ára frá Noregi. Fyrsta skipti hans á verðlaunapalli.

Úrslit Snjóbretti 16 ára og eldri

1. Einar Stefánsson frá Akureyri er 20 ára og hefur verið við nám í snjóbrettaskóla í Salem í Svíþjóð, er styrktur af 66°Norður og ferðast um heiminn og keppir og tekur upp myndbönd.

2. Jonas Strømsted 17 ára frá Grænlandi.

3. Sigfinnur Böðvarsson 16 ára frá Kóparvogi.

Yngri flokkur

1. Norðmaðurinn Marcus Klevland sigraði í snjóbrettakeppni yngri en 16 ára. Marcus Kleveland er bjartasta vonin í brettaheiminum í dag þó ungur sé að árum. Hann er sá yngsti í heiminum til að gera triple cork og sigraði Burton Europian open í fyrra.

2. Benni Friðbjörnsson Akureyringur er aðeins níu ára og þykir einn efnilegasti brettaiðkandi íslands og hefur keppt hefur víða erlendis.

3. Baldur Vilhelmsson 12 ára frá Akureyri

Iceland Winter Games - Teaser Clip - Same Day Edit from Red Bull Iceland on Vimeo.


Tengdar fréttir

Akureyri breytist í skíða- og brettaþorp

Nokkrir af þekktustu skíða- og brettaköppum heims eru væntanlegir hingað til lands á Iceland Winter Games-vetraraleikanna sem fram fara á Akureyri í mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×